Múlaþing: byggðasögurit Austurlands - 01.01.2004, Page 124
Múlaþing
Geinarhöfundur við gœsamerkingar.
Ljósmynd: Emil Björnsson.
Fjölsóttir fuglastaðir
Fuglar í vortalningu teljast að meðaltali
á um 135 stöðum sem er um 15 staðir í
hverju sveitarfélagi og er þá úthagi ekki
talinn með sem staður. Þessir staðir skiptast
þannig: Jökuldalur 18, Jökulsárhlíð 15,
Hróarstunga 16, Hjaltastaðaþinghá 16,
Eiðaþinghá 11, Felí 10, Fljótsdalur 18,
Vellir 14, Skriðdalur 17 og Egilsstaðir 1.
Þetta er nokkuð öfugsnúin dreifing grágæsa
þar sem mesti fjöldi þeirra er á Úthéraði, en
þær sjást á fleiri stöðum á Upphéraði.
Fáeinir staðir og bæir skera sig úr hvað
fuglaijölda varðar. Ar eftir ár velja gæsir og
álftir sér fæðusvæði á ræktuðu landi á vorin
á Héraði þar sem þær staldra við ýmist fram
að varpi eða þar til gróður í úthaga hefur
tekið við sér. Þetta eru ekki aðeins þeir
fuglar sem eiga hér varpheimkynni heldur
einnig þeir fuglar sem fara um á farleiðum
sínum til annarra svæða og landa.
Það er hæpin skýring að fuglarnir velji
sér þessa fjölsóttu staði til fæðuöflunar, af
tilviljun ár eftir ár, fjöldi annarra staða
stendur þeim til boða. Það er fýrst og fremst
vegna ræktunar sem fuglarnir eru á
viðkomandi stöðum, annars væru þeir
dreifðir út um alla móa og mýrar sem þeir
og eru þegar úthagagróður hefur tekið við
sér. Þessir útvöldu, fjölsóttu fuglastaðir
hafa eitthvað til að bera fram yfir aðra staði.
Líklegt er að ástæður fyrir ljölsóttum
fuglastöðum séu af ýmsum toga og skipta
búskaparhættir miklu máli í því sambandi.
Þeir staðir sem grágæsir sækja mest í eru
þar sem stundaður er hefðbundinn sauðíjár
og nautgripabúskapur, blandaður búskapur
og matjurtarækt. Þar er ræktað land yfirleitt
mikið eða því er vel við haldið með
reglulegri endurræktun og með ríkulegri
áburðargjöf lífræns og tilbúins. Einnig er
mögulegt að aðrir þættir eins og staðsetning
staðanna, umferð - truflun og friðhelgi geti
haft áhrif ásamt fyrrnefndum atriðum sem
skapa skilyrði. Munur milli hefðbundinna
og fjölsóttra staða virðist ekki stafa af
stærðarmun staðanna.
Miðað við þróun og stöðu mála í
íslenskum landbúnaði er líklegt að
breytingar þar muni koma fram í breyttu
dreifingarmynstri grágæsa og álfta. Eftir
því sem fleiri jarðir fara í eyði og ræktun á
þeim lendir í órækt munu þessir fuglar
sækja meira á þá staði sem eftir verða í
ábúð.
Dreifing
Sumarbeit ljölskyldunnar í júní og júlí
er ýmist í og við varplöndin eða fuglarnir
sækja í hagana lengra til og getur þá verið
veruleg vegalengd sem lögð er að baki. Þar
sem svo háttar til safnast fjölskyldur saman
122