Saga - 2015, Page 14
flutti Þjóðviljinn frétt um að slíkt atvik hefði átt sér stað í Reykjavík,
undir fyrirsögninni: „kani ærist við að neyta kyneiturs, er hann
ætlaði borðdömu sinni“. Samkvæmt fréttinni hafði bandarískur
hermaður reynt að byrla stúlku „frygðarpillu“ á Hótel Borg en
drukkið sjálfur úr glasinu og lögreglan þurft að færa hann á brott
þegar hann byrjaði að rífa sig úr fötunum.3
Daginn eftir að fréttin birtist í Þjóðviljanum hófst rannsókn á mál-
inu að skipan dómsmálaráðuneytisins. Fjöldi fólks sem viðriðið var
keflavíkurflugvöll og starfsmenn á Hótel Borg voru kallaðir til yfir-
heyrslu en enginn vildi kannast við að hafa orðið var við notkun
kynörvunarlyfja og blaðamenn Mánudagsblaðsins og Þjóðviljans neit -
uðu að gefa upp heimildarmenn sína.4 Þá hefði málinu senni lega
verið lokið ef ekki hefði, fáeinum dögum síðar, átt sér stað atburður
í vestmannaeyjum sem var umsvifalaust tengdur við sögurnar af
kynörvunarlyfjunum. Hópur Bandaríkjamanna af keflavíkurflug -
velli var þá í skemmtiferð í eyjum. karl og kona úr hópnum fóru í
göngutúr og lögðu leið sína upp á grasivaxna hæð við íþróttavöllinn
í eyjum. Á göngunni rifnuðu nælonsokkar konunnar og fór hún því
úr þeim. Þegar parið var komið upp á hæðina greip konuna skyndi-
leg lofthræðsla svo maðurinn varð að hjálpa henni niður.5
Meðan á þessu stóð var hópur fólks kominn saman við íþrótta-
völlinn að horfa á knattspyrnuleik, en bandaríska parið á hæðinni
virðist ekki hafa vakið minni athygli áhorfenda enda voru þau, að
sögn áhorfenda, að kyssast og láta vel hvort að öðru á göngunni.
Fjórir karlar úr hópi áhorfenda, sem yfirheyrðir voru sem vitni,
töldu að konan hefði verið öllu ástleitnari við manninn en hann við
hana. Hún hefði síðan farið úr sokkunum og látið þá fjúka út í vind-
inn. Að minnsta kosti tveir þeirra litu svo á að framferði konunnar
hefði verið ósiðlegt og óviðeigandi, þótt annar þeirra viðurkenndi
að hann hefði verið gleraugnalaus og því ekki séð mjög vel frá sér.
eitt vitnið orðaði það svo að honum virtist „útilokað að venjuleg
kristín svava tómasdóttir12
3 „kani ærist við að neyta kyneiturs, er hann ætlaði borðdömu sinni“, Þjóðviljinn
19. ágúst 1952, bls. 1 og 4.
4 ÞÍ (Þjóðskjalasafn Íslands). DR (Dóms- og kirkjumálaráðuneytið) B/1660.
Rannsóknir — kynörvandi lyfjanotkun. Skýrsla um rannsókn á kynörvandi
lyfjanotkun 9. september 1952 og endurrit úr sakadómsbók Reykjavíkur 22.
ágúst 1952.
5 ÞÍ. DR B/1660. Rannsóknir — kynörvandi lyfjanotkun. endurrit úr sakadóms-
bók Gullbringu- og kjósarsýslu 29. ágúst 1952.
Saga haust 2015 umbrot.qxp_Saga haust 2004 - NOTA 26.11.2015 11:00 Page 12