Saga - 2015, Blaðsíða 177
mikla og Hvítramannaland og flutti Beauvois þónokkra fyrirlestra um það
efni á þingum fræðimanna í Ameríkufræðum á síðari hluta 19. aldar og
fyrstu árum 20. aldar. Þar kemur m.a. fram að Beauvois staðsetti vínland á
svipuðum slóðum og Páll Bergþórsson veðurfræðingur gerði síðar, í ná -
grenni New york (sjá kort á bls. 15). Þessi ágæti fræðimaður er nú að mestu
gleymdur og á kristján hrós skilið fyrir að draga rannsóknir hans fram.
einnig er hér ýtarleg umfjöllun um hugmyndir og kenningar fræðimanna á
19. öld um það hvernig siðir, venjur og frásagnir dreifðust milli þjóða og er
þessi kafli allur hinn fróðlegasti.
Því næst er kafli um aðferðafræði rannsóknarinnar. kristján telur að
þverfagleg nálgun henti viðfangefninu best. Samvinna og samræður vís-
indamanna úr mörgum fræðigreinum um efnið — fólks úr fornleifafræði,
sagnfræði, bókmenntum og náttúruvísindum — séu líklegastar til árangurs.
Í því sambandi ræðir hann meðal annars hugmyndir karls Poppers um
hvað geti talist vísindalegar kenningar og hvort mögulegt sé að sanna þær
eða afsanna. Þetta er óneitanlega skynsamleg nálgun.
Þriðji kaflinn fjallar um papaörnefni og þar er gagnlegt yfirlit yfir papa -
nöfn á Íslandi, í Færeyjum, á Hjaltlandi og Orkneyjum, á katanesi og í Suður -
eyjum. Niðurstaða kristjáns er að flest séu þessi nöfn af norrænum toga og
tengist landnámi norrænna manna á þessum slóðum. Hann veltir því hins
vegar fyrir sér hvort nöfnin geti verið tengd eldri kristinni búsetu. Það er
athyglisvert að papanöfnin eru nokkurn veginn jafndreifð um skosku eyj-
arnar en eru í klösum á Íslandi og í Færeyjum. kristján dregur einnig fram
örnefnið Papper á Papøy í Austfold í Noregi en við nánari athugun kom í
ljós að þetta er náttúrunafn og þýðir geirvarta eða brjóst.
kristján telur upp öll papaörnefni á Íslandi, sem er einkum að finna á
austurhluta landsins. Hann bætir þó við tveimur á Suðurlandi, Papakrossi í
vestmannaeyjum og Papahelli, en bendir réttilega á að þau nöfn geti verið ný.
Staðreyndin er nefnilega sú að flest ef ekki öll tengsl milli papa og hellanna á
Suðurlandi eru frá fyrri hluta 20. aldar og virðast hafa orðið til eftir að rann-
sóknir þeirra einars Benediktssonar og Brynjúlfs frá Minna-Núpi komu út.
Hvergi í eldri heimildum eru hellarnir tengdir pöpum. Svo dæmi sé tekið
fjallar Bogi Th. Melsteð nokkuð ítarlega um papa í Íslendinga sögu sinni og
dregur þar fram allt sem þá var um papa vitað en tengir þá hvergi við hellana.
Bogi var fæddur og uppalinn á Suðurlandi og vissi án ef af hellunum.
Næsti hluti fjallar svo um jörðina Seljaland og umhverfi hennar. kristján
velur hana vegna þess að hann telur jörðina mjög gamla og einmitt þar
stendur hnífurinn í kúnni. Seljalands sem bújarðar er ekki getið fyrr en í
kirkjumáldaga frá 1332 en hins vegar eru í Landnámu nefnd tvö örnefni
tengd Seljalandi, Seljalandsár og Seljalandsmúli. Nú er það svo að örnefnið
Seljaland þýðir einfaldlega landsvæði þar sem eru sel og það segir ekkert
um fasta búsetu þar þótt þar sé að finna örnefni tengd seljabúskap. Þar fyrir
utan eru elstu varðveittar útgáfur af heimildinni fyrir þessum örnefnum
175
Saga haust 2015 umbrot.qxp_Saga haust 2004 - NOTA 26.11.2015 11:00 Page 175