Saga - 2015, Qupperneq 22
sem ef til vill hefur verið vísað burt af Hótel Borg vegna ölvunar,
rifnir nælonsokkar og blygðunarlaust kossaflens á almannafæri —
þetta varð að eldfimri blöndu og hafði í för með sér ítarlega rann-
sókn og yfirheyrslur yfir fjölda fólks í þremur mismunandi lögreglu-
umdæmum. „kyneitrið“ var óvenju beinskeytt tákn um þá líkam-
legu, sálrænu og menningarlegu ógn sem herstöðvarandstæðingar
töldu að steðjaði að íslensku samfélagi.33 Þegar kynörvunarlyfja-
málið var rannsakað kom þó ekkert í ljós sem hönd var á festandi.
Þremur árum áður hafði hins vegar komið upp mál af skyldum toga
sem þróaðist á nokkuð annan hátt.
„Gerð og útbreiðsla klámmynda,
sem kenndar hafa verið við Keflavíkurflugvöll“34
Þann 12. maí 1949 birtist svohljóðandi frétt í Tímanum undir fyrir-
sögninni „Óþrifnaður“:
Flest er farið að pranga með nú á dögum. Meðal þess, sem gengur
kaupum og sölum um bæinn með rándýru verði, eru myndir af nökt -
um konum og körlum, þar sem kynfæri þeirra og kynhvatir eru af -
skræmd og svívirt með ýmsum klúrum tilburðum og sóðalegu hátt erni.
Fylgja myndunum þær sögur, að þær séu teknar suður á kefla víkur -
flugvelli af starfsmönnum þar og ýmsum „fínum dömum“ höfuð -
staðarins. Að minnsta kosti sumt af þessum myndum getur alveg eins
verið utan úr skuggahverfum stórborganna. er alltítt, að fégráðugir
náungar þar eins og hér geri sér að féþúfu að pranga út svona óþrifnaði
í fávísan almenning.35
Fyrri hluta árs 1949 höfðu reglulega birst greinar í Þjóðviljanum og
Tímanum um meint spillingarástand á keflavíkurflugvelli, í síðar-
nefnda blaðinu einkum í dálknum „Á förnum vegi“.36 Meðal annars
kristín svava tómasdóttir20
33 Lbs.-Hbs. katherine Connor Martin, Nationalism, Internationalism and Gender,
bls. 105–106.
34 ÞÍ. SR (Sakadómur Reykjavíkur) FA6/85. Mál nr. 3857–3859/1949. Ragnar
Bjarkan, „Gerð og útbreiðsla klámmynda, sem kenndar hafa verið við kefla -
víkurflugvöll“. Skýrsla 5. júlí 1949.
35 „Óþrifnaður“, Tíminn 12. maí 1949, bls. 2.
36 Sjá einkum J.H., „Johny gamli er voða krútt“, Tíminn 9. janúar 1949, bls. 2 og
7; J.H., „viðhorf lögregluþjóns af flugvellinum“, Tíminn 13. janúar 1949, bls. 2,
J.H., „Löggæzla ill-framkvæmanleg“, Tíminn 15. janúar 1949, bls. 2, J.H., „A
Lonely Heart’s Club?“, Tíminn 19. janúar 1949, bls. 2 og J.H., „Um menn og
Saga haust 2015 umbrot.qxp_Saga haust 2004 - NOTA 26.11.2015 11:00 Page 20