Saga - 2015, Qupperneq 23
máttu forsvarskonur kvenfélags Njarðvíkur verja sig ásökunum um
að á dansleikjum félagsins í samkomuhúsi þess við flugvöllinn flyti
allt í smygluðum bjór og sterku áfengi og að á eftir söfnuðust ungar
stúlkur af höfuðborgarsvæðinu í drykkjuveislur á flugvellinum.37
Látið var að því liggja að í bröggum þar væru „dætur betri borgara
í Reykjavík“ látnar kasta klæðum, þeim „stillt upp á borð, mynd -
aðar þar aftan frá, framan frá og neðan frá, einar eða við annan og
þriðja mann“ og myndirnar gengju síðan milli manna.38 Lýsingar á
myndatökum af íslenskum stúlkum í svallveislum á keflavíkur -
flugvelli birtust einnig í Mánudagsblaðinu. Þar voru ljósmyndirnar
sagðar „teknar á ýmsan hátt, en klæðnaður „stjarnanna“ minnir
óþyrmilega á klæðnað frumstæðustu þjóðflokka“.39
Það var hins vegar ekki fyrr en fyrrnefnd frétt birtist í Tímanum
12. maí sem yfirvöld gripu til sinna ráða. Sama dag hóf Sveinn
Sæmundsson, yfirlögregluþjónn í Reykjavík, rannsókn á málinu.
Það er ekki ólíklegt að dómsmálaráðherra hafi átt frumkvæðið að
rannsókninni þótt það komi hvergi fram í heimildum.40 Hér var
enda um lögbrot að ræða ef rétt reyndist. eins og Sveinn orðaði það
í skýrslu sinni snerist málið um „myndir, sem venjulega ganga
undir nafninu: klámmyndir“.41 Samkvæmt 210. grein íslenskra
hegningarlaga frá 1940 var, og er reyndar enn, refsivert að birta á
prenti klám sem og að „búa til eða flytja inn í útbreiðsluskyni, selja,
útbýta eða dreifa á annan hátt út klámritum, klámmyndum eða
öðrum slíkum hlutum eða hafa þá opinberlega til sýnis, svo og að
efna til opinbers fyrirlestrar, eða leiks, sem er ósiðlegur á sama
hátt“.42 210. greinin tók við af 185. grein hegningarlaganna frá 1869
svarti pétur 21
þjóðir“, Tíminn 26. janúar 1949, bls. 2. Höfundur pistlanna „Á förnum vegi“
var Jón Helgason en fjórum árum síðar tók hann við ritstjórn blaðs Þjóð varnar -
flokks Íslands, Frjáls þjóð.
37 J.H., „Johny gamli er voða krútt“, Tíminn 9. janúar 1949, bls. 2 og 7.
38 J.H., „Um menn og þjóðir“, Tíminn 26. janúar 1949, bls. 2.
39 „keflavíkurhneykslið orðið þjóðarskömm“, Mánudagsblaðið 28. mars 1949, bls.
1. Sjá einnig „keflavíkur flugvöllur“, Mánudagsblaðið 2. maí 1949, bls. 1.
40 „Það var því eðlilegt, að dómsmálaráðuneytið fyrirskipaði rannsókn þessa
máls“ segir þó í frétt sem birtist í Morgunblaðinu í júní. Sjá „Nota munnlegan
áróður og önnur blöð fyrir sora þann sem þykir óhæfur í Þjóðviljann“, Morgun -
blaðið 25. júní 1949, bls. 2.
41 ÞÍ. SR FA6/85. Mál nr. 3857–3859/1949. Skýrsla rannsóknarlögreglunnar í
Reykjavík 12. maí 1949.
42 Stjórnartíðindi 1940 A, bls. 51–52.
Saga haust 2015 umbrot.qxp_Saga haust 2004 - NOTA 26.11.2015 11:00 Page 21