Saga - 2015, Page 26
á sér af tilviljun eitt sinn þegar hann kom á skrifstofu Æsku lýðs -
fylkingarinnar „og sýndi þær þá nokkrum strákum“.52 Æskulýðs -
fylkingin var ungliðahreyfing Sameiningarflokks alþýðu — sósía-
listaflokksins og var til húsa á Þórsgötu 1, en þar höfðu Sósíalista -
félag Reykjavíkur og málgagn sósíalista, Þjóðviljinn, einnig aðsetur.53
Nákvæmar tímasetningar varðandi útbreiðslu ljósmyndanna eru
á reiki. Þótt dreifing þeirra væri takmörkuð framan af höfðu ýmsir
menn séð þær áður en Friðrik kom með þær á skrifstofu Æskulýðs -
fylkingarinnar.54 Það er því ekki útilokað að það hafi verið þær sem
vísað var til í Tímanum í janúar 1949 og í Mánudagsblaðinu sama vor.
Lýsingar Tímans á myndunum eru þó fremur almennar og ákveðin
atriði í frétt Mánudagsblaðsins passa ekki. Til dæmis bendir ekkert til
þess að myndirnar hafi verið sendar í íslenskar framköllunarversl-
anir eins og þar er haldið fram.55
Samkvæmt framburði Friðriks sagði Lárus honum ekkert um
það hvaðan myndirnar væru komnar eða hvaða fólk væri á þeim,
en eftir að „orðrómur komst á kreik um að klámmyndir teknar á
keflavíkurflugvelli væru í umferð hér í bænum, datt mér í hug að
þessar myndir væru teknar þar“. Meðal þeirra sem staddir voru á
skrifstofu Æskulýðsfylkingarinnar þegar Friðrik kom með myndirn-
ar þangað var kunningi hans sem hér verður nefndur Magnús.
Magnús sagði svo frá við yfirheyrslu: „Ég hafði beðið [Friðrik] um,
ef hann yrði var við klámmyndir af keflavíkurflugvelli, að lofa mér
að sjá þær. Það var töluvert talað um þessar myndir í bænum og þar
sem þær voru orðaðar við keflavíkurflugvöll, hafði ég áhuga fyrir
að sjá þær.“ Magnús sagði Friðrik ekki hafa slegið neinu föstu um
það hvaðan myndirnar væru „en spurði mig og fleiri hvort við
kristín svava tómasdóttir24
52 ÞÍ. SR FA6/85. Mál nr. 3857–3859/1949. Skýrsla rannsóknarlögreglunnar í
Reykjavík 16. maí 1949.
53 Um starfsemi Æskulýðsfylkingarinnar á þessum tíma sjá t.d. Guðni Th.
Jóhannesson, Óvinir ríkisins. Ógnir og innra öryggi í kalda stríðinu á Íslandi
(Reykjavík: Mál og menning 2006), bls. 62–65.
54 Friðrik sagðist hafa sýnt myndirnar í þröngum kunningjahópi, en þær höfðu
einnig verið sýndar í kunningjahópi flugvirkjanemanna sem tóku þær upphaf-
lega. Sjá ÞÍ. SR FA6/85. Mál nr. 3857–3859/1949. Skýrsla rannsóknarlögregl-
unnar í Reykjavík 17. maí 1949 og endurrit úr lögregluþingbók Reykja víkur 30.
maí 1949, bls. 2.
55 „keflavíkurhneykslið orðið þjóðarskömm“, Mánudagsblaðið 28. mars 1949, bls.
1. Það getur þó auðvitað verið að óskyldum upplýsingum hafi einfaldlega
verið bætt við frétt Mánudagsblaðsins.
Saga haust 2015 umbrot.qxp_Saga haust 2004 - NOTA 26.11.2015 11:00 Page 24