Saga - 2015, Page 33
mark á rannsóknarniðurstöðum yfirvalda: „Það er engum efa bund -
ið að þær eru teknar á keflavíkurflugvelli af samförum íslenzkra
kvenna og erlendra setuliðsmanna þar. Þegar lögreglan skarst í leik-
inn rakti hún myndirnar einnig beint suður á keflavíkurflugvöll, en
þeir sem þar voru yfirheyrðir báru það að þeir hefðu fengið mynd-
irnar frá Bandaríkjunum! er sú afstaða skiljanleg hjá mönnum sem
sárt er um atvinnu sína.“76 Það er að sínu leyti rétt að ljósmyndirnar
höfðu verið raktar suður á keflavíkurflugvöll, þar sem flugvirkj -
arnir sem höfðu þær upphaflega undir höndum störfuðu þar. Í
Þjóðviljanum var hins vegar einnig gert ráð fyrir því að myndirnar
hefðu verið teknar þar. Fyrirsögn fréttarinnar var „Dómsmála ráð -
herrann og klámmyndirnar“. eins og hún gefur til kynna beindi
blaðið spjótum sínum að Bjarna Benediktssyni, sem oft áður, og taldi
dómsmálaráðherra ekki láta sig það neinu varða „þó verðandi
íslenzkar mæður séu leiddar á glapstigu og íslenzkur æskulýður sé
laðaður inn á brautir bandarískrar siðspillingar. Hans hlutverk er að
hylma yfir með glæpamönnunum og siðleysingjunum og að reyna
að ata auri þá æskumenn sem vilja leggja fram sinn skerf til að berj-
ast gegn þessari nýju landráðamenningu.“77 Hér var lögð áhersla á
hlutverk kvenna í að tryggja vöxt og viðgang þjóðarinnar; konurnar
sem höfðu kynferðislegt samneyti við erlenda karla á keflavíkur -
flugvelli voru „verðandi íslenzkar mæður“.
Næstu daga birtu hin dagblöðin einnig fréttir um klámmynda-
málið. Í Vísi sagði að ljósmyndirnar hefðu verið „um skeið til sýnis
á Þórsgötu 1, þar sem er aðalbækistöð kommúnista, en þar hafði
komið fram hugmyndin um fjöldaframleiðslu á myndunum, og tók
ljósmyndari Þjóðviljans að sér starfið. … Æskulýðsfylking komm-
únista hefur gengið ötult fram í því starfi, sem jafnvel Þjóðviljinn
veigraði sér við. Sýnir þetta, að kommúnistaflokkurinn ætlar mönn-
um misjafnt verk að vinna, en starfsemin er sæmilega skipulögð í
heild“.78 Alþýðublaðið tók undir: „kommúnistaflokkurinn hefur
staðið fyrir umfangsmikilli klámmyndagerð í því augnamiði að
koma bletti á keflavíkursamninginn og framkvæmd hans. Menn úr
æskulýðsfélagi flokksins eru látnir hafa forgöngu um þessa þokka-
legu iðju, en flokkurinn í heild ber auðvitað hina raunverulegu
svarti pétur 31
76 „Dómsmálaráðherrann og klámmyndirnar“, Þjóðviljinn 26. júní 1949, bls. 3 og
8.
77 Sama heimild, bls. 3.
78 „Rógtungur og skemmdarstarf“, Vísir 28. júní 1949, bls. 4.
Saga haust 2015 umbrot.qxp_Saga haust 2004 - NOTA 26.11.2015 11:00 Page 31