Saga - 2015, Page 56
verið „kaldhygginn“ en áleit jafnframt endurreisnarmenn hafa verið
„… miklu kaldhyggnari, en menn eru nú á dögum, …“!49 Lítið er nú
að marka mannlýsingar af þessu tagi en til er allt annars konar texti
sem kann að varpa ljósi á persónu Sigurðar. Það er bréf um kaup
hans á landspildu sem kölluð var Reykjamannahagi og var á mörk-
um jarðanna Haga og Reykja í Hvömmunum í Grenjaðarstaðarsókn.
Höfðu lengi staðið þrætur um hvorri jörðinni landið tilheyrði.
keypti Sigurður þrætulandið af eigendum beggja jarðanna sem og
Hvamm og lagði það undir þá jörð. Um kaupin sagði hann:
… og leitst mier med þessu móte ad fridkaupa þessa menn. þvi mier
reid litid um þau utlát (þvi fridurinn er bestur) því vil jeg nu alvarlega
aftaka þessa þrætu med gódra manna ráde. svo hun ecke leingur vare
ad mier lifande edur daudum, þvi fridur og samþycke er best. (Leturbr.
HH).50
kaupbréfið fyrir Reykjamannahaga bendir til að Sigurður hafi elskað
friðinn. vera má að það hugarfar hafi ekki aðeins náð til safnaða hans
heldur einnig mótað aðkomu hans að siðaskiptamálinu.
Afstaða Sigurðar Jónssonar til lútherskunnar
Þegar getum skal leitt að því hvenær og hvernig Sigurður kynntist
lútherskri guðfræði og trúartúlkun og snerist hugsanlega til kirkju-
gagnrýni eða ef til vill til fylgis við siðbót í lútherskum anda ber
einkum að hafa hliðsjón af ferðum hans til útlanda.
23. júlí 1534 gaf Jón Arason út vega- og erindisbréf til handa séra
Sigurði Jónssyni sem ætlað var að annast erindi biskups erlendis að
minnsta kosti um þriggja ára skeið.51 virðist þar vera átt við Sigurð
hjalti hugason54
49 Guðbrandur Jónsson, Herra Jón Arason, bls. 62, 65 og 236.
50 DI XI, bls. 400. Svipuð mynd af Sigurði blasir við í bréfi sem fjórir prestar og
fimm leikmenn rituðu um rétt hans til að gifta Helgu bróðurdóttur sína vegna
vanefnda giftingarmanns hennar: „… ad heidursamlegur mann Sira Sygurdur
Jonsson beiddi oss fyrrneffnda menn heillra ráda og löglegra álita huorsu oss
þætte löglegast ad farandi heimann ad giffta sijna Brodurdottur Helgu
Aradóttur að obrákudum Gudz logum og manna. Þui hann lýsti fyrer oss ad han
villdi ongvum manni órett giora. En j annari grein villdi hann heil og holl rad leggia
þessari sinne frændstulku.“ (Leturbr. HH.) DI XIII, bls. 278–279.
51 DI IX, bls. 699–700 og 714–715; Páll eggert Ólason, Menn og menntir I, bls. 118–
119 og 227; Guðbrandur Jónsson, Herra Jón Arason, bls. 291; Þórhallur Gutt -
ormsson, Jón biskup Arason, bls. 52; Páll eggert Ólason, Íslenskar æviskrár frá
Saga haust 2015 umbrot.qxp_Saga haust 2004 - NOTA 26.11.2015 11:00 Page 54