Saga - 2015, Page 62
Hann hafði siglt einusinni vegna föður síns fyrir kóng, og … svarið
kóngi með knéfalli trúnaðareið, uppá hans religionem og ordinantiu.
þá fékk hann og kóngl. majest. beskermelsisbréf, þar fyrir hélt hann
aldrei með föður sínum móti trúnni lútversku, eður kónginum.75
Hvað sem segja má um heimildagildi þessarar klausu er efamál
hvort mögulegt hefur verið að halda til streitu aðgreiningu milli
konungshollustu og trúmálapólitíkur þegar komið var á konungs-
fund þótt það hafi verið gert á Oddeyri 1541.76
Í sömu átt benda ummæli í bréfi sem Peder Palladius sendi 1546
Ormi Sturlusyni lögmanni og Pétri einarssyni sýslumanni og síðar
presti í Hjarðarholti. Bréfið bendir líka til að árangurinn af sendiför
Sigurðar og fyrirheitum hafi valdið vonbrigðum ytra. vera má að
Magnús Björnsson byggi ummæli sín um þá tilslökun er afi hans á
að hafa hlotið í siðaskiptamálinu á ummælum Palladiusar í þessu
bréfi um „… alle de Svar. der goede vare ud af hans naade …“ og
byggð hafi verið á heitstrengingum sendimannanna.77 en í þessum
svörum kunna að hafa falist fyrirheit um umburðarlyndi við trú
Jóns sjálfs ef hann stæði ekki í vegi fyrir siðaskiptaþróuninni. Svo
virðist sem Sigurður hafi þó áfram notið nokkurs trausts ytra eða að
samvinna við hann og Ólaf Hjaltason hafi að minnsta kosti verið tal-
in besta leiðin til að framfylgja siðaskiptamálefninu. Þannig ritaði
Peder Palladius Jóni Arasyni bréf, þann 16. mars 1550, þar sem hann
hvatti mjög til þess að Jón tæki lútherska trú eða drægi sig í hlé. Þar
í er þessi kafli:
vtuelied ydur einhuörn gódan mann sem kann ad vera ydar suffra-
ganius og sended hann hingad eijrn vetur. ad hann kome þá strags
afftur ad visitera og Reformera allar kyrkiur og klaustur j ydar stickte.
hjalti hugason60
75 „Æfisaga og ættbálkur Jóns biskups Arasonar og barna hans“, bls. 388. Guð -
brandur Jónsson benti á að kristján III hafi ekki haft afskipti af siðaskiptamál-
efnum í Hólabiskupdæmi sérstaklega eftir þessa sendiför og þau fyrirmæli
sem ekki áttu við Skálholtsbiskupsdæmi eitt hafi verið mjög al mennt orðuð.
Guðbrandur Jónsson, Herra Jón Arason, bls. 201–202.
76 vilborg Auður Ísleifsdóttir, Byltingin að ofan, bls. 224–225.
77 DI XI, bls. 460–461, sjá og bls. 754–759. Jón Halldórsson í Hítardal segir Sigurð
og ferðafélaga hans 1542–1543 hafa svarið konungi trúnaðareiða fyrir sína
hönd og Jóns biskups og „… þar á ofan sóru þeir sig undir þau lúthersku
trúarbrögð og kongl. Majest. kirkjuordinantiu“. Jón Halldórsson, Biskupasögur
II, bls. 5. Taldi Jón Sigurð aldrei hafa brotið gegn eiðnum en nefndi ekki þróun
hans í átt til lúthersku með sama hætti og hann gerði um Ólaf Hjaltason. Jón
Halldórsson, Biskupasögur II, bls. 6–7.
Saga haust 2015 umbrot.qxp_Saga haust 2004 - NOTA 26.11.2015 11:00 Page 60