Saga - 2015, Blaðsíða 74
Saga LIII:2 (2015), bls. 72–108.
arnþór gunnarsson
Ferðamannalandið Ísland
Fjöldi og formgerð erlendra ferðamanna 1858–19141
Á síðari hluta nítjándu aldar og í byrjun tuttugustu aldar tóku erlendir
skemmtiferðamenn að venja komur sínar til Íslands. Í þessari grein er
kannaður fjöldi erlendra ferðamanna á árunum 1858–1914, sveiflur í kom -
um þeirra og vöxturinn á tímabilinu. einnig er formgerð ferðamannanna
greind sem og hvatinn að baki ferðalaginu. er þetta einkum gert með ítar-
legri athugun á íslenskum fréttablöðum og tímaritum sem sögðu frá komu
þeirra og ferðum um landið. Höfð er hliðsjón af þróun ferðamennsku er -
lendis, sérstaklega í Bretlandi þaðan sem flestir ferðamennirnir komu. Í ljós
kemur að erlendum ferðamönnum fjölgaði gríðarlega á því 56 ára tímabili
sem hér um ræðir, einkum um og upp úr aldamótunum. Í greininni er leitað
skýringa á þessari þróun.
Hugtakið ferðamaður (e. tourist) í merkingunni skemmtiferðamaður
er tiltölulega ungt. Í Bretlandi kemur það fyrst fyrir seint á átjándu
öld en einmitt þá færðist í vöxt að fólk af efri stigum samfélagsins
ferðaðist sér til afþreyingar og skemmtunar bæði innanlands og
utan. Þá hafði reyndar tíðkast lengi, eða frá því um 1660, að ungir
breskir karlmenn úr ráðandi stéttum tækjust á hendur löng ferðalög,
The Grand Tour (sem gat staðið í nokkur ár), um meginland evrópu.
Að vísu voru slík ferðalög fyrst og fremst af hugmyndafræðilegum
toga, liður í menntun og þroskaferli þessara ungu manna, fremur en
að þau væru beinlínis farin í afþreyingarskyni.2
Öldum saman var Ísland utan alfaraleiðar og skipaferðir strjálar
og tímafrekar. erlendir ferðamenn voru sjaldséðir gestir og liðu oft
1 Þessi grein er hluti af rannsóknarverkefninu „viðhorf Íslendinga til erlendra
ferðamanna og ferðamennsku, 1855–1914“, sem hlaut styrk úr Launasjóði sjálf -
stætt starfandi fræðimanna (RANNÍS) 2014.
2 James Buzard, The Beaten Track. European Tourism, Literature, and the Ways to
Culture, 1800–1918 (Oxford: Clarendon Press 1993), bls. 1, 97–104, 109–110 og
120–122; James Buzard, „The Grand Tour and after (1660–1840)“, The Cambridge
Companion to Travel Writing. Ritstj. Peter Hulme og Tim youngs (Cambridge:
Cambridge University Press 2002), bls. 37–42. Tímabilið sem kennt er við The
Grand Tour stóð til um 1830.
Saga haust 2015 umbrot.qxp_Saga haust 2004 - NOTA 26.11.2015 11:00 Page 72