Saga - 2015, Side 105
fyrstu bækurnar sem beinlínis leiðbeindu lesendum um slóðir bók-
mennta og höfunda þeirra, til dæmis Dickens-London, og voru bæði
ljósmyndir og uppdrættir notaðir til skýringa.85
Áðurnefndar bækur, Voyage au centre de la Terre og Der König von
Thule, hafa án efa átt mikinn þátt í að vekja forvitni útlendinga um
Ísland, ef ekki beinlínis draga fjölda þeirra til landsins. Og það
gerðu skáldsögur enska rithöfundarins Hall Caine (1853–1931)
áreiðanlega líka. Snemma á rithöfundarferli sínum, nánar tiltekið í
ágúst 1889, heimsótti Caine Ísland ásamt Mary eiginkonu sinni.
Caine þekkti vel rithöfundinn William Morris (1834–1896), sem
ferðaðist til Íslands árin 1871 og 1873, og telur höfundur ævisögu
Caines líklegt að Morris hafi smitað Caine af áhuga sínum á landinu
og fornsögunum. Caine var líka heillaður af eyjunni Mön þar sem
voru margar norrænar tengingar. Þar gerðust nokkrar af skáld sög -
um hans og þar bjó hann raunar lengi. Þegar Caine og Mary komu
til Íslands vann Caine að nýrri skáldsögu, The Bondman, og nýtti
hann það sem fyrir augu bar í ferðinni óspart í söguna. Þetta er róm-
antísk skáldsaga, eins og nær allar sögur Caines. Hún gerist að
nokkru leyti í Reykjavík og á Þing völlum en líka á Mön. Gagnrýn -
endur lofuðu bókina og hún seldist ákaflega vel. Gagnrýnandi The
Times benti á að sagan væri undir mikl um áhrifum frá sögu Manar
og Íslands og mætti lesa hluta af henni eins og ferðabækling. The
Bondman var þýdd á ellefu tungumál og endurprentuð margsinnis
fram á þriðja áratug tuttugustu aldar.86
The Bondman átti stóran þátt í að skjóta Caine upp á stjörnuhim-
ininn í Bretlandi og víðar. Skáldsögur hans seldust í risastórum upp-
lögum og naut hann svo mikilla vinsælda að ferðamannastraumur
til Manar stórjókst eftir að hann settist þar að. Það gekk svo langt að
ferðamenn sátu um heimili hans.87
ferðamannalandið ísland 103
85 Ian Ousby, The Englisman’s England, bls. 17–43; Barbara Schaff, „John Murray’s
Handbook to Italy. Making Tourism Literary“, Literary Tourism and Nineteenth-
Century Culture. Ritstj. Nicola J. Watson (Basingstoke: Palgrave MacMillan
2009)“, bls. 106–118; Melanie Smith, Nicola MacLeod and Margaret Hart
Robertson, Key Concepts in Tourist Studies, bls. 108–111; Nicola J. Watson,
„Introduction“, Literary Tourism and Nineteenth-Century Culture, bls. 1–3; Nicola
J. Watson, The Literary Tourist. Readers and Places in Romantic & Victorian Britain
(New york: Palgrave MacMillan 2006), bls. 5 og 8–12.
86 vivien Allen, Hall Caine. Portrait of a Victorian Romancer (Sheffield: Sheffield
Academic Press 1997), bls. 193–195, 202–204, 216 og 381.
87 Sama heimild, bls. 7 og 143–181.
Saga haust 2015 umbrot.qxp_Saga haust 2004 - NOTA 26.11.2015 11:00 Page 103