Saga - 2015, Page 121
vissulega verður bréfið til í tilteknu samhengi, líkt og allt annað
í veröldinni, en merkingin sem bréfið og sköpun þess felur í sér er
breytileg. Að setja söguleg fyrirbæri í samhengi, hvort sem það er
ástarbréf Níelsar, náhvalstönn eða fjórtán ólík handrit af Jónsbók,
felst í að raða slíkum fyrirbærum saman svo að úr verði sann -
færandi frásögn (í víðum skilningi þess orðs) um fortíð, menningu
eða annað, frásögn sem jafnframt ljær viðkomandi fyrirbæri merk-
ingu umfram sjálft sig. Samhengi á sér með öðrum orðum ekki til -
vist í sjálfu sér, þó að vissulega eigi allar staðreyndir, öll fyrirbæri,
sér stað innan einhvers samhengis. Hið víðara samhengi er engu að
síður hugarsmíð, búið til úr atriðum sem valin eru úr safni stað -
reynda (eða fyrirbæra) og viðtekinnar þekkingar sem er svo raðað
saman í samræmi við þær spurningar sem viðkomandi túlkandi er
að reyna að svara.16
Mér virðist sem sýningarhöfundar Sjónarhorns gefi þessari kenn-
ingu um sköpun samhengis undir fótinn með áherslunni á að gestir
beiti eigin skilingarvitum, með skapandi túlkun á sýningargripum
og sjálfsprottnum hughrifum út frá þeim. en á sama hátt undirstrik-
ar nálgun þeirra annmarka þessarar kenningar, a.m.k. þegar kemur
að miðlun þekkingar til almennings, þar sem hún undirstrikar að sá
sem á horfir, túlkandinn, kemur aldrei að fyrirbærinu í tómarúmi.
Það hefur þegar verið sett í samhengi, eitt eða fleiri eftir atvikum.
Þegar bréf er varðveitt á safni hefur því verið gefið varðveislugildi
og þar með ákveðin merking umfram sjálft sig. Þá er það geymt,
flokkað og skráð í samhengi við önnur gögn sem hafa áhrif á merk-
ingu þess o.s.frv. Þegar viðkomandi grip hefur verið komið fyrir í
sýningarrými er hann jafnframt orðinn hluti af stærri heild sem skil-
greinir með enn skýrari hætti merkingu hans. Það er ekki þar með
sagt að það samhengi sé hið eina mögulega, né heldur að umrædd -
ur gripur hafi ekki margs konar aðra merkingu. en sýningarhöfund-
urinn hefur óskorað vald yfir gripnum og framsetningu hans og gef-
ur honum þekkingarfræðilegt og/eða táknrænt gildi með því sam-
hengi sem hann velur honum. Gestir sýningarinnar eru þannig alls
ekki frjálsir til þess að túlka að vild. Túlkun þeirra hefur þegar verið
stýrt (sem þýðir þó ekki að allir gestir muni láta að stjórn í túlkun
sinni).
(marg)brotin sjálfsmynd þjóðar 119
16 Sjá ítarlegri umfjöllun um samhengishugtakið í: vilhelm vilhelmsson, „Stílfært
og sett í samhengi: Um heimildargildi vitnisburða í réttarheimildum“, Saga
LIII:1 (2015), bls. 38–40.
Saga haust 2015 umbrot.qxp_Saga haust 2004 - NOTA 26.11.2015 11:00 Page 119