Saga - 2015, Qupperneq 169
Árni H. kristjánsson og Sigurður Gylfi Magnússon, BÓNDINN, SPeN -
DÝRIN OG FLeIRI UNDUR ALHeIMSINS. ALFRÆÐIveRk FyRIR
ALÞÝÐU SeM JÓN BJARNASON FRÁ ÞÓRORMSTUNGU Í vATNS-
DAL vANN Á ÁRUNUM 1845–1852. Sýnisbók íslenskrar alþýðumenn-
ingar 17. Ritstjórar Davíð Ólafsson, Már Jónsson og Sigurður Gylfi
Magnússon. Reykjavík. Háskólaútgáfan 2014. Myndir, myndaskrá,
heimildaskrá, enskur útdráttur.
Sýnisbækur íslenskrar alþýðumenningar eru öflugur bókaflokkur, þar sem
margvísleg heimildarit og fræðirit hafa verið gefin út frá árinu 1997. Hér er
komið út 17. bindi þessarar ritraðar og lætur því nærri að komið hafi út bók
á ári að meðaltali. Uppbygging þessarar bókar er sérstæð, því hún er að
þriðjungi heimildaútgáfa á hluta af 19. aldar alfræðiriti en geymir auk þess
tvær langar og ítarlegar fræðiritgerðir. Sú fyrri er eftir Árna H. kristjánsson
sagnfræðing og fjallar hún um höfund alfræðiritsins, Jón bónda Bjarnason í
Þórormstungu í vatnsdal. Árni vann einnig texta Jóns til útgáfu. vinna að
uppskriftinni og heimildaútgáfunni er að stofni til meistararitgerð Árna í
hagnýtri menningarmiðlun við Háskóla Íslands en hér er auk þess fræðileg-
ur kafli um höfund alfræðiritsins, unninn í tengslum við útgáfuna. Seinni
greinin, sem birtist aftan við heimildaútgáfuna, er eftir Sigurð Gylfa Magnús -
son sagnfræðing. Hann ritar um teikningarnar sem fylgja alfræðiritinu og
þá sköpunarþrá sem birtist í myndefninu og er sú grein tengd rannsóknar-
verkefni hans „Tilfinningar, efnisheimur og hversdagslíf á 19. og fyrri hluta
20. aldar á Íslandi“. Um 50 af ríflega 500 myndum alfræðiritsins eru birtar í
bókinni og er mikill fengur að þeim. Árni og Sigurður Gylfi eru báðir
skráðir höfundar verksins en Sigurður Gylfi fylgir því úr hlaði í formála.
Ritstjórar sýnisbókanna eru Davíð Ólafsson, Már Jónsson og Sigurður Gylfi
Magnússon.
Alfræðirit Jóns Bjarnasonar frá Þórormstungu í vatnsdal er handrit í níu
bindum, sem varðveitt er í handritasafni Landsbókasafnsins, skrifað á árun-
um 1845–1852, og skráð með safnmörkunum ÍBR 67–73 4to og ÍBR 69–70
8vo. Fyrstu tvö bindin eru um spendýrafræði, þar á meðal um manninn. eitt
bindanna er safn mynda og sex bindi fjalla um aðrar greinar náttúru fræð -
innar, m.a. steinafræði, fugla og fiska. varðveislusaga handritanna er vel
þekkt. Þegar Jón bóndi lést keypti Hið íslenska bókmenntafélag handritin
og seldi þau síðar til Landsbókasafns Íslands (bls. 17). Fyrst verður fjallað
um heimildaútgáfuna sjálfa, síðan greinarnar tvær og að lokum varpað fram
nokkrum vangaveltum um heildarnálgun ritsins og túlkanir.
Handrit Jóns Bjarnasonar er mikið að vöxtum og er aðeins lítill hluti
þess gefinn út í þessu riti. Höfundar völdu tvo mjög áhugaverða hluta þess
til útgáfu og eru þeir góð kynning á verkinu. en ekki er að sjá að frekari
áætlanir séu um útgáfu verksins í heild. Annars vegar er birtur hluti fyrsta
ritdómar 167
Saga haust 2015 umbrot.qxp_Saga haust 2004 - NOTA 26.11.2015 11:00 Page 167