Fréttablaðið


Fréttablaðið - 09.04.2022, Qupperneq 8

Fréttablaðið - 09.04.2022, Qupperneq 8
67% fullorðinna Íslendinga, eða tveir af hverjum þremur, fá nægan svefn, það eru 7-8 klukkustundir á nóttu. Tæplega 30 prósent Íslendinga fengu á síðasta ári ekki nægan svefn og sváfu minna en sex klukkustundir á nóttu. 13% fullorðinna Íslendinga fundu oft eða mjög oft fyrir einmanaleika árið 2021 en hlutfallið var sjö prósent árið 2016. Ungar konur meta andlega heilsu sína verst, samkvæmt talnabrunni Landlæknis. Þá finna konur fyrir meiri streitu en karlar og geta ástæðurnar verið margvíslegar. Karlar, 35-64 ára, sofa of lítið, sem sérfræðingur segir geta haft slæm áhrif á heilsu.  birnadrofn@frettabladid.is HEILBRIGÐISMÁL Ungar konur, á aldrinum 18-24 ára, eru sá hópur sem metur andlega heilsu sína verst, samkvæmt talnabrunni unnum af Embætti landlæknis. Á síðasta ári mátu einungis 46 prósent þeirra andlega heilsu sína góða eða mjög góða á móti 65 prósentum karla á sama aldri. Í heild mátu 70 prósent fullorð- inna einstaklinga á Íslandi andlega heilsu sína góða eða mjög góða árið 2021, eða 73 prósent karla og 68 pró- sent kvenna. Árið 2019 var heildar- hlutfallið 76 prósent. Á síðustu árum hefur Embætti landlæknis vaktað heilsuhegðun, aðstæður og líðan Íslendinga. Gal- lup framkvæmir könnunina fyrir embættið og hefur hún verið lögð fyrir mánaðarlega frá árinu 2016. Mælingar úr vöktun embættisins hafa ítrekað sýnt að fleiri konur en karlar upplifa mikla streitu í dag- legu lífi. Á síðasta ári var hlutfall kvenna sem upplifði mikla streitu þrjátíu prósent á móti 21 prósenti hjá körl- um. Árið 2021 sagðist tæplega helm- ingur kvenna á aldrinum 18-44 ára finna oft eða mjög oft fyrir mikilli streitu í daglegu lífi. Hlutfall karla í sömu mælingu fór ekki yfir þrjátíu prósent í neinum aldurshópi. Þegar horft er til fólks á aldrinum 55-64 ára segjast hátt í tvöfalt fleiri konur en karlar finna fyrir mikilli streitu í daglegu lífi, 25 prósent kvenna á móti 14 prósentum karla. Sóley Dröfn Davíðsdóttir, for- stöðusálfræðingur við Kvíðameð- ferðarstöðina, segir ýmsar ástæður fyrir því að konur upplifi frekar streitu en karlar. Þar hafi áhrif bæði innri og ytri streituþættir. „Konur hafa gjarnan aðeins lægra sjálfstraust en karlar, hafa oft lent í f leiri áföllum vegna þess að þær eru útsettari fyrir ýmsum þáttum eins og til dæmis kynferðisofbeldi, búa við harðari kröfur frá samfélaginu og svo getur þetta tengst horm- ónum, meðgöngu og fæðingu barna svo dæmi séu tekin,“ segir hún. Sóley segir langvinna streitu geta haft alvarlegar afleiðingar í för með sér fyrir fólk sé ekki unnið í henni. „Hún getur til að mynda leitt til dep- urðar, misnotkunar vímuefna og áfengis og kulnunar,“ segir hún og bendir á að kulnun sé mun algeng- ari hjá konum en körlum. Samkvæmt tölum frá VIRK starfs- endurhæfingarstöð voru 68 prósent þjónustuþega þeirra konur árið 2021. Í gögnum Landlæknis kemur fram að 67 prósent fullorðinna Íslendinga, eða tveir af hverjum þremur, fái nægan svefn, það eru 7-8 klukkustundir á nóttu. Á móti kemur að tæplega 30 prósent Íslend- inga fengu á síðasta ári ekki nægan svefn og sváfu minna en sex klukku- stundir á nóttu. Stuttur svefn er algengastur meðal karla á aldrinum 35-64 ára, þar sem um þriðjungur fær of lítinn svefn, en hlutfallið fer hins vegar ekki yfir 30 prósent í neinum aldurshópi kvenna. Doktor Erla Björnsdóttir, fram- kvæmdastjóri Betri svefns, segir of lítinn svefn geta haft fjölmörg áhrif á bæði andlega og líkamlega heilsu. Við langvarandi svefnleysi geti ónæmiskerfið veikst, en eftir aðeins eina svefnlausa nótt geti mælst auknar bólgur í blóði og brenglun geti orðið á hormónum. „Þá getur langvarandi svefnleysi aukið líkur á ýmsum andlegum sjúkdómum, líkt og kvíða og þung- lyndi. Kvíði og streita eru jafnframt algengustu forverar svefnleysis í heiminum en á móti getur lítill svefn aukið á einkenni beggja,“ segir Erla. Frá því að mælingar Embættis landlæknis á líðan Íslendinga hófust hefur fjölgað verulega í hópi fullorð- inna sem greina frá einmanaleika. Árið 2016 var hlutfall þeirra sjö pró- sent en árið 2021 sögðust þrettán prósent finna oft eða mjög oft fyrir einmanaleika. Þegar einmanaleiki er skoðaður í tengslum við fjárhagsstöðu er munurinn á þeim sem eiga auðvelt og erfitt með að ná endum saman tæplega fjórfaldur. Tæplega þrefalt færri upplifa velsæld meðal þeirra sem eiga erfitt með að ná endum saman samanborið við þau sem eiga auðvelt með það, tvöfalt færri telja sig hamingjusöm og meira en tvö- falt f leiri greina frá mikilli streitu í daglegu lífi. „Fjárhagur er þáttur sem getur haft mikil áhrif á streitu,“ segir Sóley. „Fjárhagur getur líka verið þáttur í því að fleiri konur finni fyrir meiri streitu en karlar. Þær eru jú í mörgum tilfellum með lægri laun en karlar.“n Konur finna fyrir streitu en karlar sofa of lítið Þegar horft er til fólks á aldrinum 55-64 ára segjast hátt í tvöfalt fleiri konur en karlar finna fyrir mikilli streitu í daglegu lífi, 25 prósent kvenna á móti 14 prósentum karla. FRÉTTABLAÐIÐ/ VALLI bth@frettabladid.is LÖGREGLUMÁL „Ég vil ekki tjá mig um kæruna. Þetta mál er bara í ákveðnu ferli,“ segir Gunnar Örn Jónsson, lögreglustjóri á Vestur- landi. Fréttablaðið bar undir lögreglu- stjórann kæru Karls Gauta Hjalta- sonar til ríkissaksóknara, eftir þá ákvörðun lögreglunnar á Vestur- landi að hætta rannsókn á hendur yfirkjörstjórn á Vesturlandi vegna talningar atkvæða í Borgarnesi að loknum alþingiskosningum í haust. Karl Gauti var einn þeirra fram- bjóðenda sem virtust hafa náð þing- sæti á kosninganótt en misstu það svo eftir endurtalningu yfirkjör- stjórnar á Vesturlandi. Karl Gauti sagði í Fréttablaðinu í gær að ekki hefði verið ætlun löggjaf- ans að slaka á kröfum heldur þvert á móti að auka þær. Embætti lögreglu- stjóra á Vesturlandi vísar í breytingar sem Alþingi gerði á kosningalögum meðan á rannsókninni stóð. Vakið hefur athygli að ef meðlim- ir yfirkjörstjórnarinnar hefðu greitt sektarboð sem lögreglustjórinn hafði gert þeim að greiða áður en hann felldi niður málið hefði staða þeirra verið verri. Með því að greiða ekki sektina hafði yfirkjörstjórnin að minnsta kosti tímabundinn sigur í málinu. n Lögreglustjóri tjáir sig ekki um kæruna Ég vil ekki tjá mig um kæruna. Þetta mál er bara í ákveðnu ferli. Gunnar Örn Jónsson, lögreglustjóri á Vesturlandi Þá getur langvarandi svefnleysi aukið líkur á ýmsum andlegum sjúkdómum, líkt og kvíða og þunglyndi. Doktor Erla Björnsdóttir, framkvæmda- stjóri Betri svefns 8 Fréttir 9. apríl 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.