Fréttablaðið - 09.04.2022, Page 22

Fréttablaðið - 09.04.2022, Page 22
Enginn annar þjálfari fer með álíka pressu á sér inn í mótið. Aron er hæfileika- ríkasti leikmaður deildar- innar. n Lykilmaðurinn n Vörn n Miðja n Fylgstu með ▲ Komnir/farnir ▼ n Sókn n Þjálfari Valur hafnar í 1. sæti n Spá Fréttablaðsins 1. sæti Valur 2. sæti Víkingur 3. sæti FH 4. sæti Breiðablik 5. sæti KR 6. sæti Stjarnan 7. sæti ÍA 8. sæti Leiknir R 9. sæti KA 10. sæti ÍBV 11. sæti Keflavík 12. sæti Fram Krafan er einföld á Hlíðarenda þetta árið, liðið á að vinna deild- ina. Sú krafa er skiljanleg enda hefur Valur fjármuni sem önnur lið hafa ekki, eftir vonbrigði síðasta árs hefur verið gefið í og styrkingin verið mikil. Lið með Hólmar Örn Eyjólfsson og Aron Jóhannsson sem nýja menn á að vinna deildina. Guy Smit stendur vaktina í markinu hjá Val í vetur, ákveðið var að losa Hannes Halldórsson. Smit hefur virkað óöruggur í vetur og gefið mörk í mörgum leikjum. Smit er hol- lenskur markvörður sem gerði vel fyrir Leikni en það er allt annað að spila fyrir Val sem hefur ríka sögu. Hólmar Örn Eyjólfsson á að binda vörnina saman en varnarmaðurinn er mættur heim á besta aldri. Hann ætlar að sanna ágæti sitt en óvíst er hver verður við hlið hans í vörninni. Í aðdraganda móts- ins hefur Orri Sigurður Ómars- son verið með Hólmari, en til taks eru Sebastian Hedlund og Rasmus Christiansen. Jesper Juelsgård og Birkir Már Sævarsson manna svo bakvarðastöðunar, Jesper hefur heillað í vetur með frábærum fyrirgjöfum og öflugum varnarleik. Þá er vitað að Birkir Már Sævarsson skilar alltaf sínu. Hvernig verður miðjan? Það er stóra spurningin. Jafnvel Heimir veit það ekki. Allar líkur eru á að hann spili sitt leikkerfi sem er 4-3-3. Valsmenn hafa ótrúlega marga sem geta leyst þetta en stóra spurningin er um Hauk Pál. Mun hann eiga sitt sæti í liðinu? Valsmenn með hann innanborðs hafa virkað undanfarið sem allt annað lið þegar hann spilar. Nú eru margir um hituna og hann hefur verið meiddur. Verður það Birkir Heimisson eða jafnvel Arnór Smárason sem mun sjá um að sitja á miðjunni meðan liðið sækir? Hafa bætt við hlaupagetu í Orra Hrafni og Ágústi Eðvaldi. Guy Smit kom til Vals fyrir tíma- bilið og á að fylla skarð Hannesar Halldórssonar sem yfirgaf Hlíð- arenda á heldur leiðinlegan hátt. Það er gríðarleg pressa á Smit en umræða fór af stað snemma á árinu um að Valsmenn væru ekki hrifnir af því sem hann hefur upp á að bjóða í rammanum og væru að leita að markverði. Þeir ætla þó að standa með sínum manni og veðja á Hollend- inginn stóra og stæðilega. Hafði hjá Leikni sannað ágæti sitt þar sem hann stóð vaktina með stakri prýði. Hann þarf að finna það form í upphafi móts til að róa varnarlínuna fyrir framan sig. Hefur í vetur verið mjög mis- tækur og kjaftasögurnar um að Valur væri að skoða annan mark- vörð hafa vafalítið náð til hans. Valur þarf á því að halda að Smit spili vel svo umræðan um Hannes Þór fari ekki á flug. Heimir er sigurvegari af guðs náð, en í sumar kemur í ljós hvort hann hafi bognað eftir hörmungar síðasta sumars. Valur spilaði ekki góðan fót- bolta og úrslitin hrundu svo undir lok móts. Heimir hefur sjö sinnum orðið Íslandsmeist- ari sem þjálfari og krafan er að hann landi áttunda titlinum í haust. Heimir er harður í horn að taka og ef leikmenn leggja sig ekki 100 prósent fram á hverri einustu æfingu eru þeir fljótir að detta úr plönum hans. Þekktur fyrir að æfa af mikilli ákefð og lið hans eru oftar en ekki í betra formi en andstæð- ingarnir. Hefur í vetur bætt við hlaupagetu á miðsvæði sitt sem sárvantaði síðasta sumar. Pressan er á Heimi í sumar, sem fékk allt traustið frá stjórn Vals síðasta haust. Hér er verið að tala um bestu sóknarlínu liðs frá upphafi. Pat- rick Pedersen og Aron Jóhanns- son eru framlína sem hvaða lið sem er, á hvaða tíma sem er, myndi vilja. Með Guðmund Andra og Tryggva á köntunum hefur liðið nóg púður til að skora fleiri mörk en þeir munu fá á sig. Pressan er mikil á að Valsmenn leiki framar og gefi þessum listamönnum pláss til að blómstra. Valsmenn munu ekki sætta sig aftur við þunglamanlegan bolta þar sem sóknarstöðurnar byrjuðu nánast á þeirra eigin vítateig. Það er hreinlega ekki í boði. Hvorki fyrir Valsmenn né aðra stuðningsmenn sem vilja koma og sjá. Sigurður Egill Lárusson og Tryggvi Hrafn Haraldsson eru svo öflug vopn sem geta sært hvaða lið sem er. Aron Jóhannsson Aron Jóhannsson er mættur heim í íslenska fótboltann á besta aldri. Aron er aðeins 31 árs gamall en hann átti frábæran feril í at- vinnumennsku, sett hafa verið spurningarmerki við það hvernig heilsan er hjá Aroni. Valsmenn hafa þó litlar áhyggjur af henni en Aron hefur unnið sig jafnt og þétt inn í hlutina og ætti að slá í gegn í sumar. Aron er hæfileikaríkasti leik- maður deildarinnar og ef allt smellur þá ætti hann að verða besti leikmaður Íslandsmótsins. Búist er við að Aron leiki fyrir aftan Patrick Pedersen, saman eiga þeir að mynda hættulegasta sóknarpar deildarinnar. Fari svo að Patrick hiksti líkt og á síðustu leiktíð getur Aron leikið sem fremsti maður. Gengi síðustu sex tímabil 2016 5. sæti | 2017 1. sæti | 2018 1. sæti | 2019 6. sæti | 2020 1. sæti | 2021 5. sæti n Íslandsmeistarar 1930, 1933, 1935, 1936, 1937, 1938, 1940, 1942, 1943, 1944, 1945, 1956, 1966, 1967, 1976, 1978, 1980, 1985, 1987, 2007, 2017, 2018, 2020 n Bikarmeistarar 1965, 1974, 1976, 1977, 1988, 1990, 1991, 1992, 2005, 2015, 2016 ▲ Aron Jóhannsson ▲ Hólmar Örn Eyjólfsson ▲ Ágúst Eðvald Hlynsson (lán) ▲ Orri Hrafn Kjartansson ▲ Heiðar Ægisson ▲ Jesper Juelsgård Guy Smit ▼ Kristinn Freyr Sigurðsson ▼ Hannes Þór Halldórsson ▼ Christian Kohler ▼ Johannes Vall ▼ Kaj Leo í Bartalsstovu ▼ Magnus Egilsson Miðað við leikmannahópinn og þá sem Valur hefur bætt við í vetur er krafan bara einföld, þessi leik- mannahópur og þjálfari eiga að vinna deildina. Út frá spilamennsku í vetur væri hægt að setja liðið neðar en bara út frá leikmannahópi þá verður maður að setja þá kröfu á Val að þeir endi tímabilið í efsta sæti. Aron Jóhannsson byrjaði sinn fyrsta leik hjá Val í vikunni, hann þarf vafalítið tíma til að byggja upp leikform og það er slæmt að hann hafi ekki spilað meira. Hann er hins vegar í góðu líkamlegu formi og ég hef ekki miklar áhyggjur af honum. Aron er með meiri gæði en flestir í deildinni og ætti að komast upp með það að vera ekki í 100 pró- sent leikæfingu. Gæðin hans eiga að skila Val bæði stigum og mörkum í sumar. Á miðsvæðinu f innst manni vanta meiri stöðugleika í vali, það er ekki þetta sama flæði og önnur topplið hafa sýnt í vetur. Heimir Guðjónsson hefur ekki fundið út úr því hver hans besta miðja er. Haukur Páll hefur verið meiddur, það er spurning hvort að hann færi Sebastian Hedlund þarna upp og þá hvort að Birkir Heimisson eða Orri Hrafn Kjartansson verði með honum. Eins og þeir hafa spilað Krafan á Hlíðarenda er sú að liðið vinni dolluna og eins og er talað þá verður Aron Jóhannsson fremstur á miðjunni. Önnur spurning er hver verður með Hólmari Erni í hjartanu á vörninni, Heimir virðist ekki sáttur með Hedlund eða Rasmus þar og hefur verið að spila Orra Sigurði á undanförnum vikum. Bakvarðar- stöðunar eru í toppmálum með þá Jesper Juelsgård sem virkar öflugur og hinn síunga Birki Má Sævarsson. Öll augu verða svo á þjálfaranum Heimi Guðjónssyni. Það er búið að kaupa marga stóra leikmenn og krafan er bara einföld, það á að vinna deildina. Það er ekkert annað í boði, ef Valur fer illa af stað og dregst eitthvað aftur úr þá fara öll augu á heimi. Það er enginn annar þjálfari sem fer inn í mótið með álíka pressu á sér og Heimir. Heimir þarf á því að halda að byrja mótið vel. Heimir er fæddur sigurvegari og kann því vel við sig undir pressu. n n Albert segir Albert Brynjar Ingason Heimir Guðjónsson verður undir pressu í sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI 22 Íþróttir 9. apríl 2022 LAUGARDAGUR
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.