Fréttablaðið - 09.04.2022, Page 34

Fréttablaðið - 09.04.2022, Page 34
Edda Sif Aradóttir Pind, fram- kvæmdastýra Carbfix, segist finna fyrir örlitlum loftslags- kvíða en hefur helgað sig því að gera það sem hún getur til að koma í veg fyrir frekari loftslagshamfarir. Umhverfis- málin eru stór partur af upp- eldinu en hún á þrjú börn með eiginmanni sínum Erlendi Davíðssyni. Edda Sif hefur verið hjá Carbfix frá því að það var aðeins hugmynd á blaði 2007 og séð hvernig það hefur þróast. Hún segir að þótt hún hafi verið lengi í þessu þá sé erfitt að staðna því verkefnin séu svo fjölbreytt hverju sinni. „Ég er ekki að gera það sama nú og þá. Þetta er enn Carbfix, en fyrst var ég að búa til hermilíkön og svo fór ég í verkefnastjórnun. Þetta hefur þróast og ég með,“ segir Edda. Carbfix hófst sem alþjóðlegt samstarfsverkefni og var formlega stofnað 2007. Orkuveita Reykja- víkur leiddi verkefnið með Háskóla Íslands, Columbia-háskóla í New York og CNRS í Frakklandi. En hvað gerir Carbfix? „Það er vitað að koltvíoxíð binst í bergi, því það er aðferð náttúrunnar til að varanlega geyma kolefni. Yfir 99 prósent kolefnis á jörðinni er þegar bundið í bergi. Við hugsum bara ekkert rosalega mikið um það,“ segir Edda og bendir á að, kannski eðlilega, sé meiri áhersla á það koltvíoxíð sem er sýnilegra í and- rúmsloftinu, í sjónum og í trjám. „Þetta hófst sem rannsóknar- og þróunarverkefni sem gagngert mið- aði að því að kanna hvort við gætum búið til tækni sem leyfði okkur að fanga koltvíoxíð úr útblæstri og dæla ofan í berglög, þannig að við gætum flýtt fyrir ferlinu,“ segir Edda og að jarðfræðilegu ferlin muni alltaf á endanum eiga sér stað. „En við getum ekki beðið eftir því.“ Ekki gekk allt í fyrstu Edda segir að til að byrja með hafi þau stundað rannsóknir á ferlinu sjálfu, hvað gæti þurft til að flýta því eða hægja á því og að háskólarnir hafi að mestu séð um það. Hún sjálf sá um hermireikninga, en þá var hún enn í doktorsnámi. „Fyrstu árin vorum við að rann- saka, prófa, hanna og smíða frum- gerðir og það gekk ekkert allt í fyrstu atrennu, eðlilega,“ segir Edda Sif og hlær, en að svo árið 2011 hafi þau fyrst byrjað að dæla koltvíox- íði niður í jörðina. Mesta þróunin hefur verið uppi á Hellisheiði því þar fengu þau aðgang að borholum sem var ekki verið að nýta. „Við byrjuðum að dæla niður og fórum að vakta og svo tekur þetta smá tíma. Ekki jarðfræðilegan tíma, en tekur tíma. Í tvö til þrjú ár vorum við að safna gögnum og reyna að skilja hvernig það sem við sáum í náttúrunni passaði við það sem við sáum í rannsóknarstofunni og í hermi líkönum og fengum þannig betri mynd af því hvað átti sér stað,“ segir Edda og að þannig hafi þau komist að því að á undir tveimur árum geti þau bundið koltvíoxíð sem þau dæla niður, í stein, og gert það varanlega að hluta af berginu. „Þetta breytir öllum tímaskal- anum og sýnir fram á hversu mikil- væg tæknin er til að sporna við loftslagsvandanum. Það er auðvitað fullt af öðrum lausnum sem þarf að innleiða líka, en þetta er magnað og skemmtilegt. Það sem við erum að gera er að f lýta náttúrulegum ferlum.“ Miklar breytingar síðustu ár Edda segir að það sé ótrúlegt að sjá viðhorfsbreytingarnar frá því að þau byrjuðu því þá var enn verið að rífast um það hvort að loftslagsváin væri raunveruleg. „Það var allt önnur umræða en er í dag. En það var ljóst þá, eða við töld- um okkur vita, að innan einhverra Hefur þróast með verkefninu Edda Sif með steina sem voru áður koltvíoxíð. FRÉTTABLAÐIÐ/ SIGTRYGGUR ARI Samhent fjölskylda: Erlendur Davíðsson, Hilmir Freyr, Friðrik Heiðar, Áslaug Sól og Edda Sif. MYND/AÐSEND Fjölskylda Eddu í Djúpuvík á Ströndum þangað sem þau fara reglulega. MYND/AÐSEND Edda Sif á COP26 í Glasgow. MYND/AÐSEND Lovísa Arnardóttir lovisa @frettabladid.is ákveðinna ára þá myndi heimurinn vera tilbúinn til að grípa til aðgerða og þá yrði rosalega mikilvægt að lausnirnar yrðu tilbúnar. Að það væri ekki verið að hefja þróun þá á því sem þyrfti þá strax að innleiða.“ Carbfix nýtir tækni sína á Íslandi en á þessu ári munu þau hefja til- raunaverkefni í Tyrklandi og Þýska- landi, þar sem er verið að kanna annars konar berglög, auk þess sem þau eru í annars konar rannsóknar- verkefnum í Evrópu, Norður-Amer- íku og Asíu. „Við höfum séð rosalegan áhuga og á síðustu tveimur til þremur árum eru stór fyrirtæki, sem bera ábyrgð á mestu losuninni, loksins að taka almennilega við sér, sýnist okkur. En við eigum enn eftir að komast á þann stað að skrefið sé tekið, að það sé ekki bara verið að undirbúa eitthvað í smáum skala. En það þarf að lokum að taka þessi stóru skref, sem þýðir stórar fjár- festingar.“ Okkur miðar fullhægt En finnst þér heimurinn núna til­ búinn? „Við erum komin mjög langt á stuttum tíma, en við höfum bara ekkert svo langan tíma. Hvert ár telur. Við erum á allt öðrum stað núna. Parísarsamkomulagið breytti mjög miklu en okkur miðar full- hægt. Við tölum rosalega mikið og gerum plön, sem þarf auðvitað að gera, en fram að árinu 2030 þurfum við að sjá verulegar breytingar,“ segir Edda Sif og nefnir minnkaða losun, miklar fjárfestingar í innvið- um til að fanga og farga koltvíoxíði, orkuskipti, orkusparnað og bætta orkunýtni og landnýtingu. Carbfix er viðbragð við aukinni losun, en eins og þú bendir á, er þá ekki stóra málið að minnka losun? „Jú, við erum ekki að fara að koma með tæknina okkar í starfsemi sem er úr sér gengin og úrelt. Ef við horfum á kolaorkuver í þróuðu ríki heimsins, þá erum við ekki að fara þangað til að dæla niður, ekki í þró- aðri ríkjum heimsins, þar á að inn- leiða nýja orkugjafa. En í vanþróaðri ríkjum heimsins, þar er ekki sama staða og þar er eðlilegt að í nýjum kolaorkuverum sé innleidd einhvers konar tækni eins og okkar. Því það er ekki hægt að gera sömu kröfur á allar þjóðir heimsins, það þarf að taka tillit til aðstæðna.“ Finnur fyrir örlitlum kvíða Spurð um loftslagskvíða, fyrir hennar hönd, eða barna hennar, viðurkennir Edda Sif að hún finni fyrir honum. Ekki miklum, en þó örlitlum kvíða. „En ég er búin að helga mig því að gera það sem ég get og við sem vinnum hjá Carbfix erum öll þar. Við finnum til rosalega mikillar ábyrgðar að okkar tækni nýtist, ekki bara hér, heldur á heimsvísu og þannig erum við markvisst að gera það sem við getum til að forða okkur frá verstu loftslagshamförun- um,“ segir Edda, en áréttar að mesta ábyrgðin liggi hjá stjórnvöldum og stórum losurum. Hún segir að það hafi alltaf geng- ið vel að vinna með stjórnvöldum, en að hennar mati ættum við að vera komin lengra. Það sé búið að setja lokamarkmið en að hún sakni þess að sjá nægilegt fjármagn og hvatakerfi fyrir þau fyrirtæki sem eru að losa mikið, til að þeim finn- ist það ekki þess virði og að það sé ekki eftir neinu að bíða. „Því að þegar öllu er á botninn hvolft þá snýst þetta um peninga, því miður, og á meðan það er enn ódýrara að losa og gera lítið en að bregðast við af alvöru, þá eru of margir sem velja að bíða.“ Snýst ekki um einstaklinga Umræðan er oft fókuseruð á úrgang og raf bíla og Edda segir að þó svo að það beri allir ábyrgð á sér, þá f innist henni f ingrinum of oft bent á einstaklinga og höfðinu enn stungið í sandinn hvað varðar stærstu losendur í heiminum. „Einstaklingar eru ekki vanda- málið. Stærsta vandamálið er stór- losendur. Orkuframleiðslukerfin og hvernig iðnaður var þróaður á sínum tíma. Við erum að losa allt of mikið í stóriðju. Við erum búin að setja okkur markmið fyrir 2030, 2040 og 2050 og þurfum að setja fókus á stóru bitana og stöðva losun þar, en á sama tíma þá skiptir máli að við séum meðvituð sem einstaklingar og neytendur í þessu máli. Þannig getum við haft meiri áhrif, en það er þá með því að krefjast þess að það fái enginn fríspil.“ n Við erum komin mjög langt á stuttum tíma, en við höfum bara ekkert svo langan tíma. Hvert ár telur. 34 Helgin 9. apríl 2022 LAUGARDAGURFréttablaðið
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.