Fréttablaðið - 09.04.2022, Side 122

Fréttablaðið - 09.04.2022, Side 122
Já, það var alltaf spurn- ingin: Hvernig myndi Seabear hljóma núna? Af því að við vorum allt annað fólk fyrir 12 árum síðan. Við höfum þróast sem tónlistar- menn. Sindri Már Sigfússon Sóley Stefánsdóttir og Sindri Már Sigfússon eru meðlimir indí-sveitarinnar Seabear, sem hefur snúið aftur eftir tólf ára hlé. Sóley og Sindri hafa aldrei hætt að vinna að tónlist saman á þessu tíma- bili, og segjast hafa átt auðvelt með að falla aftur í Seabear- hljómförin í verkefni sem ætti að kæta gamla aðdáendur sveitarinnar. ninarichter@frettabladid.is Indí-rok k sveitin Seabear var stofnuð árið 2003. Sveitina skipa Guðbjörg Hlín Guðmundsdóttir, Halldór Rag narsson, Kjar tan Bragi Bjarnason, Örn Ingi Ágústs- son, Sindri Már Sigfússon, einnig þekktur fyrir Sin Fang, auk Sóleyjar Stefánsdóttur. Sveitin sendir frá sér nýja plötu eftir 12 ára hlé, sem ber titilinn In another life. Seabear þá og nú Sindri og Sóley segjast hafa hist reglulega, og oft hefur komið til tals að blása lífi í sveitina að nýju. „Þetta var alltaf eitthvert grín og svona pæling,“ segir Sóley. Sindri svarar: „Já, það var alltaf spurningin: Hvernig myndi Seabear hljóma núna? Af því að við vorum allt annað fólk fyrir tólf árum síðan. Við höfum þróast sem tónlistar- menn,“ segir hann. „Það er fyndið að blanda okkur öllum saman aftur, af því að við erum svo ólík.“ Hann segir að meðlimir sveitar- innar hafi alltaf verið ólíkir. „En svo þegar bandið hætti að vera aktíft held ég að fólk hafi enn þá meira verið að fara út í sín eigin horn. Ekki ég og Sóley samt, við höfum unnið saman eiginlega alveg síðan bandið hætti,“ segir hann og bætir við að sveitin hafi lagt hljóðfærin á hill- una í sátt og samlyndi, fyrir rúmum áratug. „Það var ekkert dramatískt þegar við hættum, þannig lagað, þetta var bara komið gott,“ segir hann og bætir við að planið hafi þó aldrei verið að hætta alveg. Þreytt eftir langan túr Sóley tekur undir það. „En þetta gerðist svo hratt, við gáfum út plötu og vorum að túra rosalega mikið,“ segir hún. „Og erum heppin að vera með þýskt útgáfufyrirtæki, þannig að það var auðvelt fyrir okkur að spila erlendis,“ segir hún. „Það var rosa mikið af tónleikaferðum og við vorum alveg þreytt eftir það. Það er ein af ástæðunum fyrir að við tókum pásu.“ Sindri jánkar því. „Já, og þá vorum við búin að vera stans- laust að túra í tvö ár,“ segir hann. Aðspurð um hlustendahópinn og hvort að hann hafi breyst eða endurnýjast, svarar Sóley. „Þetta er pottþétt sama fólkið, en maður finnur að það er sami hópurinn sem er búinn að bíða spenntur. Það er fyndið að átta sig á að við erum alveg 12 árum eldri,“ segir hún. Ellefu börn á tólf árum Sindri nefnir einnig barnalán hljómsveitarmeðlima í því sam- hengi. „Það er búið að bætast ansi mikið af börnum í hljómsveitina, þetta eru alveg ellefu börn! Við erum bara komin með backup- band,“ segir hann glettinn. „En við náðum eiginlega bara að spila á Airwaves á meðan við vorum að vinna plötuna og svo kom Covid. Það hefur ekkert verið í boði að spila. En maður finnur að þetta er fólk sem hefur fylgst með bandinu lengi.“ Platan var að miklu leyti unnin í samkomubanni og Sóley nefnir að það heyrist. „Mér finnst svo fyndið með þessa plötu, að við hittumst ekkert mikið á meðan við vorum að gera hana. Þar skín alveg í gegn karakter hljómsveitarmeðlima, hvaðan uppspretta laganna kom. Og svo þarf að koma þessu fyrir í einni plötu sem sándar svona – eins.“ Aðspurð um íslenskt tónlistar- landslag þá og nú bendir Sindri á að mörg sem voru að spila í þeirra senu fyrir 12 árum síðan séu hætt í tónlist og farin að gera aðra hluti. „En okkar samtímafólk var rosalega sterkt þegar við vorum í þessari senu. Við vorum að ferðast svo mikið saman,“ segir hann. „Við ferðuðumst með múm og Benna Hemm Hemm og Hudson Wayne, sem er alveg hægt að gera þegar maður er 25 ára,“ segir Sindri. „Ekki þegar maður er aðeins eldri en það, þá verður það erfiðara.“ Hann segist sjá það í tónlistarsmekk sinna barna að þau séu ekki upptekin af tónlistarstefnum. „Þau hlusta bara á allt sem þeim finnst skemmtilegt. Landamærin að óskýrast Sóley tekur undir það. „Mér finnst skemmtilegt hvað landamæri tón- listarstefna eru orðin óskýrari. Maður er einhvern veginn bara að gera allt og leggja sína bestu vinnu í það. Það skiptir ekki máli hvað það heitir,“ segir hún. Stórum hljómsveitum fylgja f lækjustig. „Eitt vandamálið við þetta band er að við erum til dæmis búin að reyna að plana myndatöku í þrjá mánuði. Það er aldrei þannig að allir komist á sama tíma,“ segir Sindri. Þrátt fyrir það sé mannaskipan sú sama og þegar Seabear tók pásu fyrir tólf árum og Sóley segir að enginn sé hættur. „En alltaf þegar ég hugsa um Seabear hugsa ég um tónleika á sumrin í Reykjavík. Við höfum gert mikið af því og það er mjög Seabear-legt,“ segir hún. Aðspurður hvort að um sé að ræða nostalgíukast fyrir gamla Seabear-aðdáendur, svarar Sindri. „Já, ég held að við höfum dottið bara í sömu förin frekar auðveld- lega. Ég man að þegar við gerðum fyrsta lagið sagði bróðir minn: Þetta hljómar mjög Seabear-lega,“ segir hann. „En það er skemmtilegt þegar það er sía af sex skoðunum og þá kemst maður að niðurstöðu sem maður myndi aldrei komast að einn. En þetta eru stundum langir Facebook-þræðir, segir Sindri og hlær. ■ Sígræn Sóley og Sindri í Seabear taka upp þráðinn eftir tólf ára hlé Sindri Már Sigfússon og Sóley Stefánsdóttir segja Seabear-sveitina stefna á útgáfutónleika í sumar. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI Kokteiláhugafólk getur glaðst um helgina, en Reykjavík Cocktail Weekend stendur nú yfir og lýkur á sunnudag. Um helgina býður fjöldi veitingastaða upp á sérstaka kok- teila af þessu tilefni. Hluti af viðburðinum er Íslands- mót barþjóna sem fram fór í Gamla Bíói á miðvikudag, þar sem Reginn Galdur Árnason á Nauthól fór með sigur úr býtum með drykkinn Galdur, og vann einnig sérstök verð- laun fyrir faglegustu vinnubrögðin. Reginn Galdur mun í framhaldinu keppa fyrir Íslands hönd á heims- meistaramóti barþjóna á Kúbu í haust.■ Kokteiláhugafólk kætist um helgina Below Deck eru raunveruleikaþættir sem gerast um borð á leigu snekkjum. Áhorfendur fylgjast með tíu manna áhöfn sem samanstendur af litríkum persónum, og ekki er laust við átök í þröngu rýminu undir pressu, þegar þjóna skal ríkasta fólki heims. Áhöfnin virðist þó ansi sátt, en þjórféð sem hún þiggur af gestum getur hlaupið á hundruðum þús- unda fyrir staka ferð sem tekur að jafnaði tvo daga. Að því gefnu að allt gangi hnökralaust fyrir sig. Þegar komið er í land sturtar áhöfnin í sig áfengi og losar um spennu og deilu- mál á misuppbyggilegan máta, áður en sagan endurtekur sig með nýja gesti um borð. Fyrsta þáttaröð kom út árið 2013 en þættirnir njóta mikilla vinsælda og hafa alls 122 þættir verið fram- leiddir. Below Deck eru í senn raunveru- leikaþættir af gamla skólanum og ferðaþættir, en áhöfnin heimsækir marga af eftirsóttustu ferðamanna- stöðum heims. Hægt er að nálgast þættina á Netflix. ■ ninarichter@frettabladid.is Pink Floyd hefur sent frá sér fyrsta lagið í 28 ár og er tilefnið mót mæla- aðgerð við stríðsrekstur Rússa í Úkraínu. Rödd úkraínska tónlist- armannsins Andríjs Khlíjvníjuk úr hljómsveitinni BoomBox er notuð í lagið, en David Gilmour, söngvari Pink Floyd, kynntist Khlíjvníjuk þegar þeir spiluðu saman á góð- gerðarsamkomu árið 2015. David Gilmour talar umbúða- laust í viðtali við breska blaðið The Guardian, þar sem hann segir: „Það er mjög erfitt og frústrerandi að sjá þessa gríðarlega sturluðu, ólög- mætu árás af hendi stórveldis gegn sjálfstæðu, friðsælu lýðræðisríki. Geðshræringin sem fylgir því að horfa upp á þetta, og hugsa: Hvað í fjandanum get ég gert? Er eiginlega óbærileg,“ segir söngvarinn. Pink Floyd hefur því sent frá sér lagið Hey hey, Rise up, þar sem rödd Khlíjvníjuks er notuð. Lagið kom út á miðnætti aðfaranótt föstudags. Ágóði af útgáfunni rennur óskiptur til hjálparstarfs í Úkraínu. Lagið má nálgast á helstu streymisveitum. Gilmour hafði gefið út fyrir örfáum árum að bandið væri hætt með öllu og myndi ekki senda frá sér tónlist aftur. Honum snerist hugur í kjölfar innrásarinnar í Úkraínu. Hann nefnir einnig per- sónulega tengingu í því samhengi en tengdadóttir Gilmours, Janina, er frá Úkraínu, og barnabörnin hálf- úkraínsk. ■ Pink Floyd gefur út lag til stuðnings Úkraínu David Gilmour hefur persónu- lega tengingu við Úkraínu. FRÉTTABLAÐIÐ/ GETTY ■ Glápið Þrætt undir þilfarinu 62 Lífið 9. apríl 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.