Fréttablaðið - 09.04.2022, Page 128
frettabladid.is
550 5000
RITSTJÓRN ritstjorn@frettabladid.is
AUGLÝSINGADEILD auglysingar@frettabladid.is
PRENTUN Torg ehf.
DREIFING Póstdreifing ehf.
dreifing@postdreifing.is 2022 - 2025
Óttars
Guðmundssonar
n Bakþankar
Persónuleiki Hallgerðar langbrók-
ar Höskuldsdóttur einkenndist af
narsissisma. Hún var sjálfmiðuð
og sóttist stöðugt eftir viðurkenn-
ingu og athygli. Hallgerður átti
enga hluttekningu með öðrum
og ráðskaðist með líf og örlög
umhverfisins. Bak við þessa hrjúfu
framhlið duldist öryggislaus lítil
stúlka, full af sársauka með brotna
sjálfsmynd, sem óttaðist að verða
afhjúpuð. Hallgerður þráði að vera
elskuð og metin að verðleikum en
enginn eiginmanna hennar stóð
undir væntingum fremur en aðrir.
Einkadóttir Hallgerðar, Þor-
gerður Glúmsdóttir, átti erfiða
og stormasama ævi. Það er ekki
auðvelt að vera barn foreldris sem
elskar sjálft sig meira en barnið
sitt. Þorgerður reyndi í sífellu að
gera Hallgerði til geðs í von um ást
eða viðurkenningu. Hún lærði að
umgangast móður sína af varúð
því að sífellt var stutt í æðiskast.
Þorgerður giftist kornung inn í
logandi fjölskyldudeilur og hafði
síðan ekkert um eigið líf að segja.
Börn narsissistískra foreldra fá
sjaldnast tækifæri til að þróa eigin
persónuleika. Á fullorðinsaldri
reyna þau að skilja væntingar og
kröfur umheimsins og gera öllum
til geðs. Þau verða ósjálfstæð og háð
áliti annarra. Einkennin eru þung-
lyndi, vanmetakennd og lélegt
sjálfsmat. „Mér líður eins og ég falli
á prófi á hverjum degi,“ sagði einn.
Meðferð er erfið en mestu skiptir
að fullorðna barnið trúi á sig og
hætti að hlusta á bergmálið af
röddum foreldranna í eigin höfði.
Hallgerður stóð aldrei með Þor-
gerði. Bergþórshvoll var brenndur
vegna þess að hún sýndi henni ekki
eðlilega móðurást. Það má því segja
að Brennu-Njálssaga eigi narsissist-
ískri móður tilveru sína að þakka. n
Vandi Þorgerðar
Helluhrauni 6,
220 Hafnarfirði
Við
blásum
nýju lífi
í hlutina
SÆKTU UM ORKULYKIL Á ORKAN.IS
Liverpool
8.999KR.
frá
flyPLAY.com