Helga Law Journal - 01.01.2021, Síða 30

Helga Law Journal - 01.01.2021, Síða 30
Helga Law Journal Vol. 1, 2021 Pétur Dam Leifsson 3130 sem síðar varð vildarréttur en þeir sem tóku sér stöðu á þeim kvarða nálægt miðju eða þar í kring voru þá í reynd helstu Grótíusarmennirnir. Tilgreina mætti ýmsa fræðimenn á öllu þessu rófi eftir daga Grótíusar en hér verður látið við það sitja að fjalla um fjóra menn sem endurspegla nokkuð vel þessa flóru og höfðu áhrif á þróun þjóðaréttar. Skal þar fyrstan telja Samuel von Pufendorf, sem var helsti talsmaður hreinna eðlisréttarkenninga um þjóðarétt, og leit raunar sérstaklega til greininga Grótíusar á eðlisrétti, en dró aðrar ályktanir en margir aðrir af öðru í verkum hans. Í öðru lagi fjölfræðinginn Christian Wolff, sem var mikill greinandi eðlisréttar í anda Grótíusar sjálfs, en lagði einnig mjög út frá hugmyndum Grótíusar um ius gentium voluntarium. Í þriðja lagi landa Grótíusar, Cornelius van Bynkershoek, sem hafði að segja má pragmatíska nálgun á verk Grótíusar. Loks í fjórða lagi Emerich de Vattel sem leit sérstaklega upp til Wolff en færði þjóðarétt í raun enn frekar í átt til þess samleiks eðlisréttar og vildarréttar sem síðar varð viðtekinn. Það sem annars einkenndi þetta tímabil eftir miðja 17. öld og fram yfir 18. öld var tímabil upplýsingarinnar þar sem hinir klassísku skólaspekingar leystu miðaldahugsun af hólmi, einkum í norðanverðri Evrópu. Menn töldu nú ófullnægjandi að reiða sig á óhlutlæga hugmyndafræði eða trúarbrögð og vildu stunda vísindalega lögfræði þar sem almennt var reynt að sætta mótsagnir eðlisréttar og einhvers konar ius gentium.88 Samuel von Pufendorf (1632–1694) lagði áherslu á grundvallarþýðingu eðlisréttar sem einu undirstöðu þjóðaréttar sem slíks. Gæta ber þó að því að eðlisréttarmenn eins og Pufendorf voru ekki svo skyni skroppnir að halda því fram að engar aðrar reglur gætu haft þýðingu í samskiptum ríkja heldur var staðhæfing þeirra sú að almennar reglur þjóðaréttar yrðu ekki réttilega leiddar fram nema sem afleiða af eðlisrétti. Ríki gætu þannig t.d. gert það er kallast nú réttarskipandi samninga en sem mættu þá ekki fara í bága við eðlisrétt. Prestssonurinn Pufendorf var frá Saxlandi og nam fyrst guðfræði en svo lögfræði við Háskólana í Leipzig og Jena, en þar var einnig annar merkur samtíðarmaður hans, stærðfræðingurinn heimskunni G. W. Leibniz. Pufendorf náði skjótum frama bæði sem fræðimaður og embættismaður og varð kunnur af verkum sínum í lifanda lífi. Sem ungur maður fékk hann tækifæri til að vera barnakennari hjá sænska sendiherranum í Kaupmannahöfn en lenti þá í varðhaldi í átta mánuði þegar í odda skarst með Skandinavíuríkjunum tveimur. Eftir að Pufendorf sneri þaðan heim að nýju gaf hann árið 1660 út ritið Elements of Universal Jurisprudence og varð sama ár prófessor í túlkunarfræðum (philology) og þjóðarétti við Háskólann í Heidelberg. Tengsl hans við Svíþjóð leiddu svo til þess að hann færði sig árið 1670 aftur um set yfir til Háskólans í Malmö í Svíþjóð þar sem hann einblíndi á eðlisrétt og þjóðarétt og skrifaði sitt kunnasta verk árið 1672. Árið 1677 var Pudendorf fenginn til að flytja frá Malmö til Stokkhólms til að taka við embætti sagnaritara (historiographer) Svíakonungs, en árið 1688 88 Koskenniemi (n 4) bls. 106–108. yfirgaf hann loks Svíþjóð og tók þá við viðlíka embætti við hirðina í Brandenborg í Prússlandi.89 Hvað varðar þjóðarétt þá leit Pufendorf til húmanískra áherslna Grótíusar og til Rómarréttar og byggði á þeim í tímamótaverki sínu frá 1672 Um grundvöll eðlisréttar og þjóðaréttar (The Law of Nature and Nations) en vinsæl styttri útgáfa kom einnig út og nefndist Um borgaralegar skyldur manna (On Duty of Man and Citizen). Verk Pufendorf lituðust einnig af samtíð hans er markaðist einkum af stöðu mála í Evrópu eftir þrjátíu ára stríðið og friðargerðina í Westfalen 1645. Framangreint verk og hugmyndir Pufendorf sækja einnig í smiðju Hobbes hvað það varðar að sýn hans er sú að þjóðaréttur sé í reynd aðeins afleiddur eðlisréttur heimfærður yfir á ríki og milliríkjasamskipti m.t.t. röklögmála er þar hljóta að gilda en hann taldi menn þó friðsama í eðli sínu í anda Aristótelesar.90 Pufendorf leit svo á að ríki væru frjáls, jafnstæð, en þyrftu reglu í samskiptum sínum líkt og samfélög. Ríki hefðu grundvallarrétt til að viðhalda sér og hefðu hagsmuni af því að halda loforð sín á milli og skapa traust.91 Útfærsla Pufendorf við það að greina og heimfæra þessi röklögmál yfir á þjóðarétt er svo að öðru leyti að segja má einkum empirísk, þ.e. byggð á greiningu reynsluraka. Ein frumsetningin væri sú að manninum væri ekki gefið að greina vilja Guðs nema í gegnum raunheiminn og reynslurök. En það sem þá blasti við að mati Pufendorf væri að maðurinn væri einkum félagsvera og sjálf mennskan sem stuðla bæri að væri ótvírætt háð þessu og annað leiddi einkum af þeirri skyldu. Maðurinn væri því háður því að lifa friðsamlega í samfélagi við aðra menn og sama gilti um ríki og samskipti þeirra en til þess þyrfti tæki á borð við lagareglur og stofnanir. Grunnstoð í þessu samhengi væri ríkið sem gæti líkt og einstaklingur verið sjálfstæður aðili og borið réttindi og skyldur í samfélagi ríkjanna sem hefðu almennt meira vægi en samskipti einstaklinga. Pufendorf gerði mun á þeim grundvallarréttindum og skyldum sem af þessu leiddi og þeim hagsmunum sem ríki kysu síðan að ráða til lykta í samningum og hann taldi standa skör lægra og ekki vera eiginlegan þjóðarétt í sama skilningi og það sem leiddi af eðlisrétti.92 En þar fyrir utan gætu venjubundin samskipti ríkja heldur ekki lagt grunn að almennum þjóðarétti sem einhvers konar ígildi samninga. Þannig væri að mati Pufendorf engin stoð fyrir almennum reglum í samskiptum ríkja sem ekki helguðust beint eða óbeint af eðlisrétti og vísaði Pufendorf þá einnig til þess að hið klassíska hugtak Rómarréttar ius gentium hefði alls ekki falið í sér reglur í samskiptum ríkja heldur aðeins einstaklinga.93 Út frá framangreindu leiddi Pufendorf síðan fram ítarlegar og áhrifamiklar hugmyndir sínar um þjóðarétt af meiði eðlisréttar, þ.e. reglur um ríkið sem þjóðréttaraðila, um fullveldi ríkja, eðli 89 Knud Haakonssen, „Samuel Pufendorf (1632–1694)“ í Bardo Fassbender og Anne Peters (ritstj.), The Oxford Handbook of The History of International Law (Oxford University Press 2012) bls. 1102. 90 Robinson, Fergus og Gordon (n 10) bls. 218. 91 Koskenniemi (n 4) bls. 90–91. 92 Knud Haakonssen, „Samuel Pufendorf (1632–1694)“ í Bardo Fassbender og Anne Peters (ritstj.), The Oxford Handbook of The History of International Law (Oxford University Press 2012) bls. 1102–1104. 93 Neff (n 5) bls.175–176.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156
Síða 157
Síða 158
Síða 159
Síða 160
Síða 161
Síða 162
Síða 163
Síða 164
Síða 165
Síða 166
Síða 167
Síða 168
Síða 169
Síða 170
Síða 171
Síða 172
Síða 173
Síða 174
Síða 175
Síða 176
Síða 177
Síða 178
Síða 179
Síða 180
Síða 181
Síða 182
Síða 183
Síða 184
Síða 185
Síða 186
Síða 187
Síða 188
Síða 189
Síða 190
Síða 191
Síða 192
Síða 193
Síða 194
Síða 195
Síða 196
Síða 197
Síða 198
Síða 199
Síða 200
Síða 201
Síða 202
Síða 203
Síða 204
Síða 205
Síða 206
Síða 207
Síða 208
Síða 209
Síða 210
Síða 211
Síða 212
Síða 213
Síða 214
Síða 215
Síða 216
Síða 217
Síða 218
Síða 219
Síða 220
Síða 221
Síða 222
Síða 223
Síða 224

x

Helga Law Journal

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Helga Law Journal
https://timarit.is/publication/1677

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.