Heilbrigt líf - 01.06.1952, Page 86
Rauði kross Bulgaríu hefur hafið nýstárlega starf-
semi til aukins þrifnaðar Sérstök járnbrautarlest, út-
búin með steypiböðum, þvottavélum og sótthreinsunar-
tækjum ferðast milli verksmiðjuborga, þar sem hrein-
læti er helzt ábótavant. Að jafnaði vitjuðu 360 manns
lestarinnar á dag, og fyrstu 10 mánuði ársins 1951 voru
hreinsuð 670 tonn af fatnaði og 930 þúsund manns not-
uðu sér böðin.
— o —
Um 15% af mönnum með sár í maga eða skeifugörn
batnar ekki fyrr en eftir skurðaðgerð.
— n —
Nú á tímum er mönnum gjarnt að álíta, að mann-
skepnan sé ekki mikils virði, en þó hafi hún hækkað í
verði um 3000% vegna dýrtíðar.
Þcssi útreikningur byggist á verðlagi frumefna manns-
líkamans, sem nú eru um 500 króna virði. Svartsýna
menn kann að undra þetta, helzt til lítið verð og ekki
mikið pr. kíló, enda fremur óhagstætt miðað við nauta-
kjöt.
— o —
Það verða fleiri slys meðal verkamanna þar, sem verk-
stjórinn er geðillur og skömmóttur. Bitnar mest á þeim,
sem taka nöldrið nærri sér.
— o —
Ræðumaður nokkur var að tala um búnað sjómanna:
,,.... Hvort sem hann ber skinnklæði horfinna kynslóða,
gúmmíverjur okkar samtíðar eða þær óþekktu hlífar,
sem framtíðin kann að færa hann í ....“.
84
Heilbrigt líf