Heilbrigt líf - 01.06.1952, Side 96
Kristján Kristjánsson.
Stefán Arnason.
Fimm bókaðir stjórnarfundir voru haldnir á árinu, en auk þess
báru stjórnarmeðlimir ráð sín saman eftir því, sem með þurfti.
Tveir fulltrúar deildarinnar mættu á aðalfundi Rauða kross ís-
lands í Reykjavík.
Eins og að undanförnu annaðist deildin sjúkraflutninga í bæ og
héraði, eftir því sem tök voru á, en við ýmsa erfiðleika var að
stríða í þessum efnum. Seinni hluta vetrar 1951 var svo snjóþung-
ur, að vikum saman var ófært öllum bifreiðum nema snjóbílum, en
seinni hluta þessa ófærðarkafla var hér snjóbíll í notkun, og greidd-
ist þá mikið úr þessum vandræðum, og var hann oft dögum saman
í förum með lækna og sjúklinga um héraðið. Myndi vera mikið ör-
yggi í því að hafa tiltækan hér einn slíkan bíl og gæti komið til
mála, að deildin ætti einhvern þátt í útvegun og rekstri slíks bíls,
en ekki hefur það mál verið athugað verulega ennþá. Hin gamla
bifreið deildarinnar var orðin svo úr sér gengin, að hún var lengst
af ónothæf, og voru aðeins fluttir með henni 48 sjúklingar innan-
bæjar, og 13 ferðir voru farnar út um sveitir. Samdi deildin við
sama mann og árið áður um sjúkraflutninga, þegar bifreið deildar-
innar var ekki tiltæk, og bjargaðist þetta með því vandræðalaust.
Flutti hann 57 sjúklinga utanbæjar og 53 í bænum.
Unnið var að því á árinu að fá nýjan sjúkrabíl, og tókst nú loks
að fá til þess nauðsynleg leyfi, og varð að ráði að kaupa Dodge-
bifreið, standard model, og er nýlega búið að taka hana í notkun.
Ljósbaðstofa deildarinnar var rekin eins og áður, og var aðsókn
góð og reksturinn bar sig, þrátt fyrir nokkuð hækkuð útgjöld. Mest
voru ljósin notuð af börnum innan skólaaldurs, en einnig talsvert
af fullorðnu fólki. Alls fengu ljósböð 240 í 3500 skipti. Er í ráði
að færa út kvíamar, ef húsnæði og tæki fást, svo að fleiri geti
notið þessarar heilsubótar. Frú Helga Svanlaugsdóttir, hjúkrunar-
kona, veitti ljósastofunni forstöðu með hinni mestu prýði.
Rauðakrossdeildin og Slysavarnardeild kvenna á Akureyri stóðu í
sameiningu að námskeiðum í hjálp í viðlögum á s.l. vori. Kennari
var Jón Oddgeir Jónsson.
Fyrir tilmæli Rauða Kross íslands gekkst deildin fyrir söfnun
til styrktar nauðstöddu fólki á flóðasvæði Pódalsins á Ítalíu. Safn-
aðist lítið, enda í mörg horn að líta hér um þetta leyti og mjög
leitað til almennings um fjárframlög til nauðsynja og mannúðar-
mála, sem nú er unnið að og mönnum standa hér nærri. Safnaðist
aðeins kr. 840,00.
Hins vegar gekk öskudagssöfnunin eins vel og áður, og komu alls
inn kr. 8.502,00, eða nokkru hærri upphæð en nokkurn tíma áður.
94
Heilbrigt lif