Úrval - 01.08.1947, Blaðsíða 10
8
■0RVAL
inn að fá óráð, taldi hann sér
trú um, að þessi dularfulli,
ókunni maður væri sendiboði úr
öðrum heimi, og að Sálumessan
ætti að verða dánarmessa hans
sjálfs. Hann barðist ákaft við
að Ijúka þessu verki, sem með
ægimætti kafar hin leyndustu
djúp sorgar og iðrunar, varpar
skærri birtu á þrá mannsins
eftir ódauðleikanum og lýkur
með björtum tónum fagnandi
trúar. Á dauðastundinni mynd-
uðu varir hans tóna dómsdags-
básúnunnar, sem hljóma í verk-
inu.
Þegar nokkrir vina Mozarts
komu saman til að hlýða stutta
messu, sem lesin var yfir líkbör-
um hans, var óveður í aðsigi. Á
leiðinni út í kirkjugarðinn tóku
eldingarnar að leiftra og steypi-
regn og stormur skall á. Lík-
fylgdin neyddist til að snúa við,
en líkvagninn hélt áfram. Hinn
granni líkami var lagður í
fjöldagröf meðal flakkara og
vændiskvenna. Jafnvel Kon-
stanze vissi ekki nákvæmlega,
hvar hinzti hvílustaður hans
var.
Mozart gekk með sigur af
hólmi í baráttu sinni við rang-
læti, sjúkdóma, skuldir og jafn-
vel dauðann. Og svar hans við
öllu, sem var Ijótt og grimmdar-
fullt, sindrar enn af bjartri
Iífsgleði.
-fc ~k ~k
Aldur kvenna.
Ef kvenmaður vill ekki segja þér hvað hún er gömul, þá er
hér ráð til að komast að þvi. Biddu hana að:
1. Skrifa niður tölu þess mánaðar, sem hún er fædd í.
2. Margfalda hana með 2.
3. Bæta 5 við.
4. Margfalda útkomuna með 50.
5. Bæta aldrinum við.
6. Draga 365 frá.
7. Bæta 115 við.
Af því sem þá kemur út, gefa tveir öftustu stafimir til kynna
aldur hennar, en sá fremsti (eða tveir þeir fremstu) tölu mán-
aðarins, sem hún er fædd í.
— Garden City Publishing Company.