Úrval - 01.08.1947, Síða 22
20
TJRVALi
er blandað í sælgætiskúlur og
seld þannig. Þó er ekki ráðlegt
að taka þau inn, nema eftir fyr-
irsögn læknis.
Þessi lækningaaoferð er einnig
sögð eiga við þær konur, sem
hafa of stór brjóst. Dupraz
nefnir tilfelli ungfrú L, sem
hafði orðið taugaveikluð vegna
loftárása. Hún hætti að hafa
tíðir og brjóst hennar, sem
höfðu verið eðiileg, tóku að
stækka ört. Þegar henni hafði
verið gefinn stór skammtur af
kynhormónum, hættu brjóstin
að vaxa og tíðir hófust á ný.
Að sjálfsögðu munu tilraunir
halda áfram með þessa lækn-
ingaaðferð Dupraz. En verð-
launin, sem Ðupraz hefur hlotið
frá franska læknisfræði-aka-
demíinu, benda eindregið til
þess, að sá tími muni ekki vera
langt undan, þegar nútímakon-
an getur ráðið vaxtarlagi sínu
með pillu.
i i
Gleymdu því!
Það þarf tvo til að koma af stað deilu, en hve marga þarf til
að jafna deilu? Þetta er ekki gáta, heldur mjög' alvarleg spum-
ing, sem með réttu svari gæti komið í veg fyrir miklar þján-
ingar.
Það er auðvelt að koma af stað deilum: eitt ógætið orð, eitt
vanhugsað verk, og áður en varir er deilan hafin. Svo kemur
stoltið til sögunnar, og þá byrja vandræðin fyrir alvöm.
Það er enginn skaði að deilum, sem spretta af einlægum
ágreiningi. Það er oft mikill léttir að því að leysa frá skjóðunni.
Ef þú berð þungan hug til einhvers, þá er miklu betra að leysa
frá skjóðunni en að láta það eitra sambúð ykkar.
Það eru eftirhreytur deilunnar, sem mest hætta stafar af. Það
er ólundin, ásetningurinn um að láta ekki undan, sem gerir
mönnum erfiðast fyrir. Við skulum því svara spurningunni
strax. Það þarf aðeins einn til að jafna deilu. Og er til of mikils
ætlast að þú gerir það? Hver ert þú, að þú haldir að tilfinning-
ar þinar og stolt sé svo mikilvægt?
Flest stolt er falskt stolt, byggt á misskilinni hugmynd um
mikilvægi eigin persónu. Gættu þess þvi i næsta skipti, sem
þú þjáist af ólund eða öðrum eftirhreytum deilu, að stíga fyrsta
skrefið til sátta. Þú munt verða undrandi yfir því, hve fús hinn
deiluaðilinn er að mæta þér á miðri leið. Hann hefir, eins og þú,
þráð að stíga fyrsta skrefið, en ekki fengið sig til þess.
— John Bull.