Úrval - 01.08.1947, Side 37
ALÞJÓÐLEG SKOÐANAKÖNNUN
35
myndastjörnur eru mest dáoar
af fólki af sama kyni.
Norðmenn telja, að Rússar
hafi gert meira en nokkur önn-
ur þjóð til þess að koma í veg
fyrir sigur Þjóðverja. Alrnenn-
ingsálit Svía er eindregið á
móti því, að giftar konur vinni
utan heimilisins. Flestir Frakk-
ar telja aðra heimsstyrjöld
óumflýjanlega innan 25 ára. De
Gaulle er enn mest dáði maður-
inn í Frakklandi, og franskar
kvikmyndir eru vinsælli þar en
kvikmyndir frá Hollywood.
Það væri hægt að halda lengi
áfram á þennan hátt, en sér-
fræðingarnir vilja koma á fót
alþjóðlegri skoðanakönnun um
félagsleg og pólitísk mál, og fá
staðfestingu á vissum sálfræði-
legum staðreyndum.
Durant, sern stundaði nám
hjá dr. Gallup í Ameríku, segir
svo: ,,Við viljum komast að
alþjóðlegum staðreyndum, svo
sern t. d., hve margt fólk notar
gleraugu. Hver er skipting
augnalitarins meðal mann-
anna? Hve margt fólk er örv-
hent? Telja flestir að hjóna-
bandið sé trúarleg eða borgara-
leg stofnun? Ef vísindamaður
og prestur væru að drukkna,
hvorum myndir þú þá bjarga?
Enda þótt sumar spurningarn-
ar virðist barnalegar og
ómerkilegar, geta þær gefið
þýðingarmiklar, vísindaiegar og
sálfræðilegar upplýsingar Sam-
kvæmt skoðanakönnun er það
t. d. Ijóst, að flest það fólk, sem
vill flvtjast brott frá Evrópu,
eru iðnlærðir menn og milli-
stéttafólk."
Enn meiri þýðingu hefir það,
að forstöðumenn skoðanakann-
anastofnana ráða yfir mjög
bitru vopni, þar sem vitneskjan
um almenningsálitið er. Stjórn-
mála- og kaupsýslumenn geta
fljótlega áttað sig á skoðunum
almennings með þessari aðferð.
Skoðanakönnun er framkvæmd
að miklu leyti eftir kerfi, sem
fundið var upp fyrir tveim ára-
tugum af dr. Gallup, sem 'þá
var 28 ára gamall prófessor í
blaðamennsku. Með því að spyrja
almenning í Ameríku, hvers
konar greinar og myndir hann
kysi helzt í blöðum og tímarit-
um, tókst Gallup að slá föstu,
hvaða smekkur væri ráðandi á
þessu sviði. Síðan sneri hann
sér að stjórnmálunum. Árið
1934 sagði hann fyrir um úr-
slit þingkosninga í Bandaríkj-
unum, svo að ekki munaði
nema einum hundraðshluta,