Úrval - 01.08.1947, Page 46
44
tJRVAL
og verður það því í þessu til-
felli um 2500 teningskílómetrar.
Ef við hugsum okkur, að
þetta vatnsmagn iægi yfir
gervöllu Englandi, sem er um
130 þúsund ferkílómetrar að
stærð, væri þar allstaðar 75
metra dýpi.
Stærsta stöðuvatn í heimi er
Efravatn í Kanada. Það er um
630 km á lengd, 130 km á breidd
að meðaltali og meðaldýpi þess
er 275 metrar. Vatnsmagnið í
Efravatni er 22 000 tenings-
ferkílómetrar en það er aðeins
tvöfalt magn þess regns, sem
árlega fellur á vatnasvæði
Amazónfljótsins.
-k 'k k
Hollráð.
Þú átt aldrei að fara með snáðann þinn í gönguferð — þú átt
að fara með honum. Reyndu að horfa á umhverfið með augum
hans og' þá mun opnast fyrir þér heill heimur dásemda og unað-
ar. Þú munt hafa yndi af samvistunum við snáðann, og' hann mun
ekki siður hafa yndi af félagsskap þínum.
— Lawrence K. Frank í „Magazine Digest".
co^co
Sjálfsmat.
Lítill drengur kom til móður sinnar og sagði: „Mamma, eg
er eins stór og Golíat; ég er 9 fet.“
„Hvemig dettur þér í hug að segja það?“ spurði móðir hans
undrandi.
„Jú, ég bjó til lítið málband handa mér og mældi mig með þvi.
Eg er 9 fet!“
Það eru margir, sem nota þessa aðferð litla drengsins. Þeir
mæla sjálfa sig með mælikvarða, sem þeir hafa sjálfir búið til.
— Tunis W. Mouw i „Pilot“.
k k k
Ég ímynda mér alltaf helvíti sem rúmgóða dagstofu, þar sem
velklætt fólk situr með hendur í skauti og sviplaus andlit, og
stritast við að halda uppi kurteisum samræðum.
— Dorothy Biack.