Úrval - 01.08.1947, Blaðsíða 64
Liðsfo ringinn og vinnukonan.
Úr „Strand Magazine“,
eftir Douglas Blackford.
Þriðjudaginn 26. júní birtist í
kvöldblaði einu í Washington
auglýsing frá Henry Randall
liðsforingja. Hún var efst í dálki
á tólftu síðu og hljóðaði þannig:
Ungur, einhleypur liðsforingi, sem
fengið hefir meira en nóg af diska-
uppþvotti, óskar eftir góðri, þrifinni,
ráðvandri., duglegri og skynsamri
svertingjastúlku til þess að sjá um
og ræsta litla og þægilega íbúð í
Haven House 222, Wis. Ave. — þótt
ekki væri nema hluta úr deginum.
Kaup 12 dalir. H. R.
Kvöldið eftir fann Henry
Randall liðsforingi bréf í kass-
anum. Það var skrifað á hálfa
Víða er vöntun á vinnukonum.
Brezkur liðsforingi, sem gegndi
störfum í Washington í Bandaríkjun-
um á stríðsánmum, auglýsti eftir
húshjálp hluta úr deginum. Hann
fær svar frá Lily Root, sem vill byrja
strax. Síðan kemur hún á hverjum
morgni, eftir að liðsforinginn er far-
inn til vinnu sinnar, en er svo á burt,
áður en hann kemur heim á kvöldin.
örk af ljósbleikum pappír, blá-
strikuðum. Það var svohljóð-
andi:
Kæri herra (H. R.)!
Ég tek starfinu. Byrja mánudag
kl. 8 f. h. Lily Root
Alphastræti 1234, S. E.
efnahagslegt hrun er yfirvof-
andi. Ef koma á til þolraunar
milli austurs og vesturs, er ég
ekki í vafa um, hvor muni vinna
— þrátt fyrir kjarnorku-
sprengjuna. Ég aðvara ykkur,
tíminn er með okkur.
Bevin: Bull! Ég læt ekki
kommúnistiskar hótanir hafa
áhrif á mig. Ég trúi því ekki, að
verðhrun sé óumflýjanlegt í
Ameríku. Þið getið sakast um
það við sjálfa ykkur, ef þið fáið
enga dollara, en vesturblökk í
staðinn.
Mólotov: Mei! Evrópa mun
glata sjálfstæði sinu, ef þið fáið
að ráða, og hún mun sópast með
í hruni hins ameríska kapítal-
isma.