Úrval - 01.08.1947, Blaðsíða 67
LIÐSFORINGINN OG VINNUKONAN
65
Miðvikudag.
Kæi'i herra Randall!
Eldhúsið yðar er að komast í
þokkalega óreiðu. Lily.
Fimmtudag.
Lily!
Ég fæ aftur heimsókn í kvöld. Það
eru kunningjar minir, komnir heim
frá Kyrrahafsvígstöðvunum. Kaupið
tylft af eggjum og dálítið af appel-
sínum. Fimm dalir i bollanum.
H. R.
Föstudag.
Herra Randall!
Það er dýrt að hafa gesti.
Lily.
Föstudagskvöld.
Kæra Lily!
Ég skil fyllilega það, sem þér segið
um eldhúsið og gestaganginn. Það er
ekki alltaf þægilegt að setja alla
diskana í vaskinn, að afloknu kvöldi
með kunningjum sinum frá Kyrra-
hafi. Ef ég hækka við yður kaupið
um einn dal á viku, býst ég við, að
þér takið því, eins og það kemur
fyrir.
Þér ættuð að reyna að sópa svo-
litið lengra inn undir rúmið og
hreinsa burt lóna, sem þar er.
Hvar settuð þér aspirínio?
Gerið svo vel að útvega sótthreins-
unarvökva fyrir salernið.
Kaup (13 dalir) í bollanum.
H. R.
Kæri herra Randall!
Allt í lagi.
Aspirinið er þrotið. Áfengi er við-
sjárvert. Lily.
Mánudag.
Kæri herra Randall!
Varalitinn og hámálamar, sem.
vora í sófanum, lét ég í vindlinga-
öskjuna. Það em engir sokkar handa
þvottahúsinu. Eigið þér nokkra.
hreina ?
Er myndin á píanóinu af yður?
Lily.
Þriðjudag.
Lily!
Nei, hún er ekki af mér. Hún fylg-
ir íbúðinni.
Ég gleymdi sokkunum. Kötturinn
hefir aftur verið að. H. R.
Miðvikudag.
Kæri herra Randall!
Ég iánaði glösin yðar stúlkunni í<
næstu íbúð. Hún hafði kocktail-boð.
Enn hafið þér gleymt að skrúfa fyrir
útvarpið. Lily.
Fimmtudag.
Kæra Lily!
Fyrir alla muni náið aftur í glös-
in. Hvað brotnuðu mörg? Að dæma
eftir hávaðanum, gæti ég haldið, að
fá væm eftir. Eg borðaði eplakök-
una, sem þér skilduð eftir. Hún var-
ágæt. H. R.
Föstudag.
Kæri herra Randall!
Glösin yðar öll heil á húfi. Vin-
kona min í Baltimore hefir veikzt.
Kem ekki á morgun. Lily.
Hér lýkur þessum heimilis-
bréfaviðskiptum. Þriðjudaginn