Úrval - 01.08.1947, Side 68
66
ÚRVAL
31. júlí var Lily enn ekki kom-
in. Henry skrifaði henni til
Alphastrætis:
Þnðjuclag, 31. júli.
Kæra Lily!
Það eru nú þó nokkrir dagar, síð-
an þér fóruð að finna vinkonu yðar
í Baltimore, og íbúðin er öll komin í
óreiðu. Hvenær komið þér aftur?
Þér hafið þó ekki veikzt sjálfar ?
H. Randall.
Næsta föstudag skrifaði
Henry aftur:
Föstudag, 3. ágúst.
Kæra Lily!
Það er nú vika, síðan þér fóruð til
Baltimore, og ég hefi ekkert til yðar
spurt. Ég vona, að þér hafið ekki orð-
ið fyrir slysi. Meðan þér hafið verið
fjarverandi, hefir verið ákveðið að
senda mig til Kyrrahafsvígstöðvanna,
og ég legg af stað á morgun. Hefi
sagt íbúðinni lausri, svo að ég fæ þá
aldrei að sjá yður eftir allt saman.
Ég læt hér inn í síðasta vikukaup-
ið og fimm dali til að jafna okkar
reikninga. Hér eru einnig meðmæli,
ef vinkona yðar hefir týnt hinum.
Verið þér sælar.
Yðar einlægur,
Henry Randall (höfuðsmaður).
Sex mánuðum seinna fékk
Henry bréf í skotgrafirnar,
skrifað á ljósbleikan, biástrik-
aðan pappír. Það var frá Lily
og hafði verið sent áleiðis frá
Haven House 222.
Alphastræti 1234, S. E.
11. ágúst.
Kæri hr. Randall (höfuðsmaður)!
Ég vona, að yður berist þessar lín-
ur. Þakka yður fyrir meðmælin. Ég
er nú hjá ungfrúnni, sem bjó í næstu
íbúð við yður. Ég varð ekki fyrir
neinu slysi. Ég var að eiga barn. Ég
skírði hann Henry Randall Root.
Með virðingu,
Lily Root.
cc oo
Juöng bið.
Ung, lagleg og ljóshærð kona opnaði dymar fyrir sölumanni,
sem hringt hafði bjöllunni. „Góðan daginn!“ sagði hann, „má ég
tala við manninn yðar augnablik?"
„Hann er því miður ekki heima. Hann er í verzlunarferð og
verður burtu í þrjár vikur.“
Sölumaðurinn leit með velþóknun á konuna og sagði: „Það
gerir ekkert til. Ég bíð bara eftir honum, ef ég má.“
— Sid Ascher í „Caravan".