Úrval - 01.08.1947, Page 75
Margskonar nytsamleg efni er
nú farið að framleiða úr þangi.
Uppskera úr sjó.
Grein úr „Contemporary Review“,
eftir Samuel Napier.
1%/fENN eru farnir að afla sér
nýrrar uppskeru úr sjónum.
Þessi uppskera er þangið, því að
vísindamönnum nútímans hefir
tekizt að breyta þessum einskis-
verða sjávargróðri í nytsamar
afurðir. Sumir nota hann sem
skepnufóður, aðrir hafa hann
fyrir áburð, en auk þess má
vinna úr honum mörg nytsöm
efni. Vísindin eru sífellt að finna
nýja möguleika, til þess að
nytja þangið. Þegar hafa sokk-
ar og nærföt verið framleidd úr
því, og er áferðin svipuð silki.
Brúna þangið er dýrmætara; því
má breyta í plast og pappír,
sement, lím og snyrtivörur.
Það eru til yfir 300 tegundir
af þangi við Bretlandseyjar og
magnið virðist ótæmandi. Á
Hebrideseyjum hefir verið unn-
ið joð úr 400 þús. smálestum
þangs árlega. Þó er Bretland á
eftir tímanum að því er snertir
nytjar sjávargróðurs. Á Islandi
er nautpeningur alinn á þangi,
og í Japan er það notað til
manneldis. Á stríðsárunum not-
uðu íbúar Ermarsundseyja þang
til þess að drýgja hinn nauma
matarskammt sinn.
Áður fyrr unnu Bretar þang
með það eitt fyrir augum, að
framleiða joð úr því. Svo var
farið að vefa dúka úr þangi, að
undangengnum miklum og
margvíslegum tilraunum. I dag
er þang talið þýðingarmikið hrá-
efni til iðnaðar. Úr brúnu þangi
er unnin „alginsýra“, en það er
ákaflega þýðingarmikið efni.
Það er auðvelt að ná þessu efni
úr þanginu, en úr því er spunn-
ið gervisilki. Fyrst í stað mátti
ekki þvo vefnað úr þessu gervi-
silki, því að efnið leystist þá
upp. En nú hefir tekizt að bæta
úr þeim ágalla, og er nú efnið
engu lakara en venjulegt gervi-
silki, mjúkt og áferðarfallegt.
Það hefir verið litað með fjölda
lita, og það er ekki eldfimt.
Þegar þetta efni er blandað