Úrval - 01.08.1947, Síða 95
ÞRöXJN 1 FORTÍÐ OG FRAMTÉÐ
93
mig sjálfan; þó að það mundi
vafalaust vera ókostur, ef
starfsæfi mín væri 400 í stað
40 ára.
Nú ætla ég að setja fram skil-
greiningu: Frelsi er viðurkenn-
ing á margbreytileik einstak-
linganna. (Ég flýti mér að bæta
því við, að af því að ég veit, að
þið hugsið ekki eins og ég,
munu fá ykkar fallast á þessa
skilgreiningu). Það samfélag,
þar sem flest sérkenni einstakl-
inga fá tækifæri til að njóta sín,
býr við frelsi í ríkustum mæli.
Það er almennt viðurkennt, að
skilyrði fyrir frelsi sé jafn rétt-
ur til tækifæra. En það er ekki
að sama skapi viðurkennt, að
ekki er síður nauðsynlegt, að
tækifærin séu margskonar, og
að umburðarlyndis sé gætt
gagnvart þeim, sem ekki full-
nægja kröfum, er talizt geta
menningarlega æskilegar, en eru
ekki nauðsynlegar þjóðfélaginu.
Ef ég ætti heima í Sovétríkj-
unum, mundi ég ekki kunna illa
því stjórnar- og hagkerfi, sem
þar ríkir; en mér mundi
gremjast, og hefur oft gram-
izt, sú skoðun, sem þar er títt
látin í ljós, að allir menntaðir
menn hafi yndi af að hlusta á
tónlist og tefla skák. Ef allir
þegnarnir væru steyptir í sama
mót, yrði lítið um frelsi. Allir
á aldrinum 45 til 50 ára myndu
þá vilja fara svo og svo oft í
bíó á viku, fá svo og svo mikið
(eða lítið) af áfengi á viku o. s.
frv. Fyrir þessum og öðrum
þörfum yrði séð með skömmtun,
á sama hátt og matvæli eru nú
skömmtuð í hitaeiningum í Eng-
landi, og allir yrðu jafnham-
ingjusamir. Það yrði ekki neitt
frelsi, engin afbrigði, engin
framþróun.
Húsdýrin, eins og t. d. hund-
arnir, eru margbreytilegri en
mennirnir. En mismunurinn
stafar af því að blöndun er
ekki leyfð milli hinna ýmsu
hundakynja. Stéttaskiptingin í
Indlandi var tilraun til að
einangra einstaka hópa og koma
í veg fyrir kynblöndun þeirra á
milli, og láta þá vinna hvern
sitt verk. Þessi tilraun mistókst,
og það er trú mín og von, að
allar slíkar tilraunir mistakist.
Ég hygg, að þegar afkomendur
okkar fara að skipuleggja
mannakynbætur, verði þeir að
leggja áherzlu á margbreytileik
án einangrunar. Ég veit ekki,
hvernig þeir eiga að fara að
því. Sem betur fer fellur það