Úrval - 01.08.1947, Side 123
TlKIN HANS SAMS SMALL,
121.
urðu að duga. Sam reyndi að
klæða telpuna, því að sjálf hafði
hún ekki hugmynd um, hvernig
ætti að fara að því. Loks var
hún komin í kjólinn, og þau fóru
niður í eldhúsið. Flurry hljóp á
undan, hlæjandi og masandi,
og hjálpaði til við eldhúsverkin.
Þegar þau höfðu matazt, bar
hún diskana að vaskinum og
þvoði þá.
Sam bað hana að koma til sín.
Hann fór að virða hana fyrir
sér, og honum fannst hún vera
fallegasta barnið, sem hann
hafði nokkurntíma séð. Hún
hafði gulbrúnt hár, sítt og silki-
mjúkt. Augun voru brún og
gljáandi, og hörundið var mjall-
hvítt.
Sam huldi andlitið í höndum
sér.
„Hvað hefi ég gert!“ and-
varpaði hann. „Hvað hefi ég
gert!“
„Nei, Sam,“ var sagt með
barnslegri rödd. „Það er mér
að kenna. Það var ég, sem
breytti mér í manneskju, af því
að ég hélt, að það myndi bæta
úr öllu. Ef þú hættir ekki að
kveina, skal ég breyta mér í
hvolp aftur.“
„Nei,“ sagði Sam, „þú mátt
ekki gera það. Ef þú breytir þér
aftur í hvolp, þá getur þú ekki
Iifað nema níu ár í viðbót, í
mesta lagi. En ef þú heldur
áfram að vera manneskja, þá
áttu yfir fimmtíu ár ólifað.
Þess vegna máttu ekki breyta
þér — ég væri hálfgerður morð-
ingi, ef ég færi fram á slíkt.“
„Ég skal fara að vilja þínum
í öllu, Sam — meðan þú selur
mig ekki. Þegar ég sá þig í
fyrsta skipti, Sam, þá varstu
svo myndarlegur, með hvítt hár
og milda rödd. Og tatarinn var
svo vondur við mig ...“
Það fór hrollur urn telpuna
og Sam klappaði henni á koll-
inn.
„Þetta er allt í lagi eins og
er, góða mín. En þegar Mully
kemur aftur — þá vandast mál-
ið. Auðvitað getur fólk rekizt
hingað inn — og þá ættir þú að
skipta um ham í nokkrar mín-
útur. Þú segist geta það.“
„Auðvitað.“
Þau réðu ráðum sínum um
framtíðina og hvernig þau ættu
að haga sér. Flurry átti að hafa
hamskipti, þegar þau voru úti
að ganga, eða ef einhver kom 1
heimsókn. Annars átti hún að
vera telpa.
„Fyrst af öllu verðum við að
kaupa þér föt,“ sagði Sam.