Úrval - 01.12.1948, Side 9
FJÓRA MÁNUÐI Á ÚTHAFSFLEKA
7
Við höfum nokkrum sinnum
lent í óveðri og lifað nokkur
angistarfull augnablik, en balsa-
flekinn reynist ágætt sjóskip.
Það er vitað, að í fornöld báru
Suður-Ameríkumenn vatnsforða
sinn í bambusstöngum og höfðu
tappa í endanum. Þó að megin-
vatnsforði okkar sé í 20 lítra
brúsum, höfum við svona bamb-
usstengur um borð. Það má hæg-
lega koma fyrir 30 slíkum stöng-
um hlið við hlið undir bambus-
þilfarinu. Þar eru þær í skugga
og sjórinn flæðir stöðugt um
þær, og helzt hitinn í þeim á
sama stigi og í sjónum. Einnig
er hægt að safna regnvatni.
Fleki, sem hefur hætt sér of
langt út frá strönd Perú í fiski-
leiðangri, hefur ekki komizt hjá
því að lenda í frálandsvindun-
um, sem stöðugt blása þarna, og
í Humboldtstraumnum, sem
liggur fyrst norður með strönd
Perú og síðan til hafs, og úr
því hlaut hann að reka sömu
leið og okkur hefur rekið. Eng-
in hætta var á, að hinir fornu
fiskimenn hefðu orðið að þola
hungur á slíkri ferð, því að flug-
fiskar lentu á flekanum hjá okk-
ur á hverri nóttu, og æta krabba
mátti tína af trjánum.
15. júlí. Á ellefu vikum hefur
okkur rekið 3478 mílur, og á
þeim tíma höfum við gert ótal
tilraunir fyrir stjórnir Bretlands
og Bandaríkjanna. Merkilegasta
tilraunin var, að reyna næring-
argildi svifsins í sjónum. Svif
er samnefni fyrir allar hinar ör-
smáu lífverur, sem lifa í sjón-
um. Sumar eru sýnilegar með
berum augum, aðrar verður að
skoða í smásjá. Allir fiskar lifa
á svifi eða smáfiskum, sem lifa
á svifi.
Við höfðum með okkur fínrið-
in silkinet (500 möskvar á hverj-
um fersentimetra) til þess að
veiða svifið. Mesta dagsveiði
okkar er fimm til tíu pund af
allskonar smákrabbadýrum,
eggjum og lirfum. Ef veiðin er
einkum krabbadýr, er hún svip-
uð á bragðið og rækjumauk. Ef
mest er af eggjum, er bragðið
svipað og af kavíar eða ostrum.
Við höfum uppgötvað, að
hægt er að drýgja drykkjarvatn-
ið rneð því að bæta í það sjó.
Þegar hitinn er mikill og salt-
þörf líkamans því meiri en
venjulega, bætum við allt að
40% af sjó í drykkjarvatnið,
og er það jafngóður svaladrykk-
ur eftir sem áður, og ekki vont
á bragðið.