Úrval - 01.12.1948, Síða 19
Fyrirsögn hins kunna rithöfundar á þessari
grein bendir til, aö hann liafi fyrr rætt
þau mál, sem hún fjallar um.
Meira nöldur.
Grein úr „New Statesman and Nation“,
eftir J. B. Priestley.
‘É'G hefi hér fyrir framan mig
eitt af víðlesnustu dagblöð-
um okkar, sem er svo þjóð-
rækið, að það er hvenær sem
er reiðubúið að afneita land-
fræðilegum og sögulegum stað-
reyndum, til þess að tala máli
Bretlands. Við skulum athuga
efnið á aðallesmálssíðu þess.
Hægra megin er dálkur, sem
skýrir frá samkeppni tveggja af
fjölleikahússtjórum okkar um
amerískar leikstjörnur. Á miðri
síðunni er listræn teikning af
amerískum flugliðsforingja, sem
nú er í Bretlandi. Jafnvel skop-
teikningin efst á síðunni, sem
er út af fyrir sig ágæt, er um
amerískt efni. Og þetta skeður
á þeim tíma, þegar okkur er
sagt, að pappírsskorturinn sé
fréttaþjónustu okkar alvarlegur
fjötur um fót.
Við, sem vinnum við leikhús
hér, mundum eiga fullt í fangi
með að fá ritstjórann til að birta
stutta klausu um áætlun okkar
fyrir næsta leikár. Samt birtir
hann næstum því á hverjum degi
eitthvað um leikhúslífið á Broad-
way í New York. Augljóst er,
að hann álítur það, sem skeður
á Broadway þýðingarmeira en
það, sem skeður hér við Shaftes-
bury Avenue. Vafalaust mundi
hann neita því harðlega, að Lon-
aon sé nú aðeins útkjálkaborg
í menningarþjóðfélagi, þar sem
New York er höfuðborgin. Samt
hagar hann (og hans líkar) sér
eins og svo væri. Þeir berast
með straumnum.
Okkur er sagt, að verið sé
að skipta heimsyfirráðunum
milli Ameríkumanna og Rússa.
Ég þekki báðar þjóðirnar og mér
geðjast vel að þeim, en ég hef
ekki minnstu löngun til að lúta
valdi þeirra, því að ég trúi því,
að við hér í Bretlandi og raun-
ar í Vestur-Evrópu allri — eig-
um menningu og andleg verð-
3