Úrval - 01.12.1948, Page 132
trtbúið hefur verið tæki, sem
geiir möunum kleift —
Að lœra í svefni.
Úr „St. Louis Post-Dispatch“,
eftir Virginia Irwin.
Max Sherover, formaður Lin-
guaphone stofnunarinnar í Ame-
ríku, hefur búið til tæki til að
kenna mönnum í svefni. Hann
er sannfærður um, að það muni
létta af mönnum mörgum stund-
um erfiðis og leiðinda við utan-
bókarlærdóm, sem ekki verður
hjá komist, t. d. við tungumála-
nám, reikning (margföldunar-
töfluna) o. fl.
Dormifónninn eða Somnófónn-
inn (honum hefur ekki endanlega
verið gefið nafn) hefur verið
reyndur í tvö ár við háskólann
í Norður-Carolina, og sálfræðing-
ar við skólann telja þá reynslu
jákvæða.
Dormifónn Sherovers er plötu-
spilari, rafmagnsklukka og hljóð-
nemi til þess gerður að hafa und-
ir kodda þess, sem læra á í
svefni.
Sá sem stóð fyrir tilraununum
var sálfræðingurinn Charles H.
Elliott prófessor og valdi hann
til utanaðlærdóms 15 óskyld,
þriggjastafa orð, sem tekin voru
á plötu.
Orðin voru: boy, egg, say, art,
run, not, sir, leg, bag, row, iee,
out, age, box, eat (sem þýða í
sömu röð: drengur, egg, segja,
list, hlaupa, ekki, herra, fótlegg-
ur, poki, röð, ís, út, aldur, kassi,
éta). Valdir voru 40 stúdentar,
sem allir höfðu eðlilega heyrn.
Við hverja tilraun fengu 20 þeirra
að sofa í friði, en imdir koddann
hjá hinum 20 var settur hljóð-
nemi, sem endurtók orðin 30
sinnum með stuttu millibili með-
an þeir sváfu. Prófessorinn gat
sannreynt, að þeir svæfu, með
heilabylgjuritanum (electroeneep-
halograph), sem skráir rafbylgj-
urnar í heilanum, en þær eru öðru-
vísi í svefni en vöku.
Þegar stúdentarnir höfðu sofið
í þrjá tíma, voru þeir vaktir, og
þeim öllum fenginn listi með
orðunum 15, og máttu þeir kynna
sér hann ákveðinn tima. Svo
var þeim sagt að skrifa þau af
orðunum, sem þeir myndu. Kom
þá í Ijós, að þeir, sem haft höfðu
hljóðnemann undir koddanum hjá
sér, voru miklu fljótari að læra
orðin, en hinir, sem fengið höfðu
að sofa í friði.
,,Af þessum tilraunum við há-
skólann í Norður-Carolina," seg-
ir Sherover, ,,má ráða, að með
hjálp Dormifónsins geti menn
stórlega flýtt fyrir sér við utan-
bókarlærdóm."
STEINDDRSPRENT H.F.