Úrval - 01.07.1954, Qupperneq 15
UPPELDI 1 ANDA OFBELDIS
13
mjög amerískan áróður, hafa
fyrir löngu bannað innflutning
á slíku. Sum lýðræðisríkin hafa
komið hikandi á eftir.
Kanadamenn settu bann á
hverskonar myndasöguhefti eft-
ir að í ljós kom, að allmörg
morð og ofbeldisglæpir, sem
framin voru af börnum og ungl-
ingum, mátti rekja til áhrifa frá
myndasöguheftunum. Og kana-
diskir kvikmyndaeftirlitsmenn
lýstu því yfir á ársþingi sínu,
að kvalalosti í kvikmyndum
væri að verða miklu alvarlegra
vandamál en ástleitni og daður
hefðu nokkurn tíma verið.
Prakkar skipuðu nefnd, sem
fylgist með útkomu og sölu
myndasöguhefta og hefur víð-
tækt vald til þess að banna þau
sem hún telur spillandi og refsa
útgefendunum. Svíar bönnuðu
innflutning á amerískum
myndasöguheftum, en leyfa enn
útgáfu á heftum með sænskum
texta og innfluttum, amerísk-
um myndamótum. Suðurafríku-
sambandið bannaði innflutning
á amerískum myndasöguheft-
um. Hollendingar lokuðu einn-
ig fyrir innflutning þeirra, en
leyfa innlend hefti. Sviss bann-
aði sölu á amerískum mynda-
söguheftum, og stöðvaði einn-
ig innflutning á amerísku
tuggugúmmi, af því að mynd-
irnar í pökkunum voru sami
óþverrinn og í myndasöguheft-
unum. Brezka og ítalska þing-
ið hafa oftar en einu sinni rætt
bann við sölu myndasögu-
hefta, en án árangurs. I Noregi
er starfandi sérstök menning-
arnefnd, hefur hún samvinnu
við útgefendur myndasögu-
hefta um að stöðva af frjálsum
vilja útgáfu verstu heftanna,
og virðist það gefa allgóða
raun.
Hér í Danmörku hefur lítið
verið aðhafst, ef til vill af því,
að ekki hefur verið hér neinn
verulegur markaður fyrir ame-
rískan hrottaskap. En í Banda-
ríkjunum liðu 15 ár áður en
nokkur kom auga á þá hættu,
sem fylgir áhrifum mynda-
söguheftanna, og ef til vill er-
um við hér heima jafnseinlát-
ir. Einn hinna góðviljuðu
Ameríkumanna, sem heimsótt
hafa Danmörku, dr. Joseph
Canavan, segir í grein í blaði
danska menntaskólakennara,
að „amerísk áhrif hafa laum-
ast inn í Danmörku um rangar
dyr.“
,,Ef ég væri félagsmálafræð-
ingur,“ segir hann, „mundi ég
sennilega skella skuldinni á
amerískar kvikmyndir, ame-
rískan jazz og teiknihefti og
ameríska ferðamenn akandi í
luxusbílum með fulla vasa af
dollurum . . . Bókabúðirnar
eru fullra af amerískum
,,pocket-books“ — sumar eru
skrifaðar af fremstu höfundum
Ameríku — en flestar eru
næsta lélegar bókmenntir.
Amerísk myndasöguhefti af
versta tagi flæða yfir landið,
og danskur almenningur er að