Úrval - 01.07.1954, Page 19
Blaðamaður kannar hjúskaparmarkaðinn,
sem hefur auglýsingar í persónu-
dálkum dag-blaðanna fyrir millilið.
ÞEGAR EROS AUGLÝSIR.
Grein úr „Verden Idag“,
eftir Henry Kaiser.
FYRIR nokkrum árum var
skýrt frá því í blöðum, að
maður nokkur hefði verið stað-
inn að því að gera sér giftingar-
löngun kvenna að féþúfu. Gegn-
um hjúskaparauglýsingar hafði
hann komizt í samband við
fjölda kvenna. Allar, nema ein,
höfðu þær lagt trúnað á orð hans
og fyrirheit. Ýmist sagðist hann
vera verksmiðjueigandi í Sví-
þjóð, skipstjóri, skókaupmaður
eða eitthvað annað. Hann hafði
fé út úr ,,unnustum“ sínum —
stundum út úr fjölskyldum
þeirra líka. En síðasta konan,
sem hann komst í samband við.
fékk grun um, að verksmiðjur
hans væri líklega ekki í Svíþjóð,
heldur — í tunglinu.
í réttinum reyndi hann árang-
urslaust að beita töfrum sínum
við dómarann. Það upplýstist,
að hann var blikksmiður, skilinn
og kvæntur aftur, en átti auk
þess margar „kærustur“ og álit-
legan hóp óskilgetinna barna.
Saga þessa svikara og kvenna-
gulls vakti hjá mér löngun til að
rannsaka nánar hjónabandsaug-
lýsingarnar sem félagslegt fyr-
irbæri. Ég tók upp á að lesa,
safna og flokka niður allar þær
hjónabandsauglýsingar og frá-
sagnir af hjónabandssvikurum,
sem ég náði í, og á skömmum
tíma var þetta orðið álitlegt
safn. Þegar ég hafði þaulkannað
safnið, notaði ég það sem efni-
við til að semja 8 hjúskaparaug-
lýsingar. Ég setti upp fjórar
mismunandi óskir kvenna um
lífsförunaut, og fjórar óskir
karla. Auðvitað náðu þessar
átta auglýsingar ekki yfir allar
óskirnar á hjúskaparmarkaðin-
r.m, en þó yfir þær helztu og
algengustu.
Þessar auglýsingar voru síðan
settar með löngu millibili í per-
sónudálka dagblaðanna. Svörin,
sem bárust voru ekki færri en
592. Þó að ekki væri heitið þag-
mælsku í neinni auglýsingunni,
hef ég að sjálfsögðu gætt fyllstu
leyndar um öll svörin. Ég endur-
sendi allar Ijósmyndirnar. Þegar
rannsókninni var lokið, brenndi
ég öll bréfin.
Það bárust að meðaltali 74
svör við hverri auglýsingu. Það
er há tala, en hún hefði sjálfsagt
getað orðið enn hærri, ef auglýs-
ingarnar hefðu verið ítarlegri