Úrval - 01.07.1954, Qupperneq 21
ÞEGAR EROS AUGLÝSIR
19
hreinskilin. 26 ára gömul vinnu-
kona skrifaði unga listamannin-
um, að hún ætti tvö börn óskil-
getin, sitt með hvorum manni.
Því næst kom langt mál um ást-
arraunir hennar. En hún barm-
aði sér ekki og blygðaðist sín
ekki heldur. Hún sagðist vera
glaðlynd og sparsöm og kvaðst
eiga nokkur hundruð krónur á
banka. Hún vildi gera allt fyrir
þann mann, sem henni geðjaðist
að, ef hún aðeins gæti treyst
honum.
Jafnhreinskilin var kona, sem
svaraði efnamanninum, er ósk-
aði eftir góðri húsmóður. Hún
hafði fallega rithönd og skrifaði
gott mál, bar bréfið ótvíræðan
vott um góða greind. Hún skrif-
aði m. a., að hún væri 38 ára
gömul, en mjög ungleg og lag-
leg — og svo kom rúsínan:
„... engu máli skiptir hvort þér
eigið börn, eruð ófríður eða
gamall. En ófrávíkjanlegt skil-
yrði er, að þér hafið góða stöðu,
séuð vel efnaður og eigið bíl.
Eg sé fyrir mér sjálf, en er fá-
tæk, og það kæri ég mig ekki
um að vera það sem eftir er
ævinnar, ef ég get komizt hjá
því.“
Maður freistast til að ætla, að
þessar tvær konur gætu talizt
vinningar í happdrætti hjúskap-
armarkaðarins.
TTVATIRNAR sem til þess
TT liggja, að menn leita eftir
kynnum gegnum hjúskaparaug-
lýsingar eru margar, en pening-
ar, þjóðfélagsstaða og annað
þessháttar er mjög mikils ráð-
andi, þó að það sé auðvitað
sjaldan sagt eins berum orðum
og í bréfunum, sem ég vitnaði í
hér að framan, og því verður
ekki neitað, að oftast eru það
karlmennirnir, sem eru auð-
virðilegastir.
Það er með öðrum orðum ekki
svo mjög manngildið, sem menn
sækjast eftir, heldur tækifæri til
að bæta kjör sín. Og segja má,
að tákn hinna veraldlegu gæða
sé bíllinn, því að í 76% svaranna
var taíll tilgreindur, annaðhvort
sem ósk eða agn.
Allt kemur þetta heim við þá
staðreynd, að jafnvel við stuttu
auglýsingunum, þar sem gefið
var í skyn, að auglýsandinn væri
vel efnaður, bárust miklu fleiri
svör heldur en við ýtarlegri aug-
lýsingum, sem skírskotuðu til
hugsjóna og manngildis. Af
þeim, sem svöruðu þessum aug-
lýsingum, voru fleiri en einn,
sem höfðu miður fallegt í huga.
Fyrsta og önnur auglýsingin
voru, eins og áður segir í hressi-
legum anda, og 90% af svörun-
um voru í sama dúr. Róman-
tízka stúlkan fékk að vísu 22
svör, en helmingur þeirra var
opinskátt eða illa dulið háð,
flest hin voru beggja blands. —
Aðeins fjögur voru einlæg, og
þau voru frá menntamönnum.
Svo virðist sem skírskotun til
tilfinninganna hafi meiri áhrif
á kvenfólkið en karlmennina,
því að flest svörin, sem ungi, al~
3*