Úrval - 01.07.1954, Síða 72

Úrval - 01.07.1954, Síða 72
70 ■0RVAL hefur aðeins verið drepið á þær algengustu. En einangrunin skapar ekki einungis tilhneigingu til flótta frá lífinu, heldur einnig óvild í garð þess, árásarhneigð sem getur beinzt bæði að einstakl- ingnum sjálfum og öðrum. Það mun mega teljast til merkustu uppgötvana sálfræðinnar, að „vondir“ menn, þ. e. menn sem eru í ósátt við lífið, séu undir- niðri ólánssamir menn, sem veita óánægju sinni útrás með því að misþyrma eða auðmýkja aðra. Þetta er einnig hægt að gera með ýmsu móti. Vér þekkj- um öll kvartsjúklinginn (kvær- ulanten), sem aldrei er ánægður nema hann hafi eitthvað til að kvarta undan, vér þekkjum at- vinnurekandann eða skrifstofu- stjórann, sem finnur nautn í því að láta undirmenn sína skjálfa af hræðslu þegar hann sýnir sig, hjónabandsharðstjórann, hvort heldur hann er karl eða kona, kvalarann, sem hefur nautn af þjáningum fórnarlambs síns. Hina leyndu óánægju- og van- metaduld, sem margir bera í sér, er við sérstakar aðstæður hægt að „virkja“ í þágu eyðilegging- ar af ýmsu tagi. Gyðingahatrið er eitt þess háttar fyrirbrigði, — en skaðvænlegast þeirra allra eru styrjaldir. — Nærri undantekningarlaust „vill“ eng- inn maður stríð. Vér vitum öll, að það mun boða endalok menningarinnar — ef til vill mannkynssögunnar. Eigi að síð- ur berum vér í brjósti stöðugan ótta við þriðju heimsstyrjöldina, og það af gildri ástæðu. Það er undarleg mótsögn fólgin í þessu, því að hví skyldi koma til stríðs þegar yfirgnæfandi meirihluti manna, bæði austan tjalds og vestan, vill ekki stríð ? Sannleik- urinn er sá, að viljinn ræður mjög litlu um gerðir mannsins, hann stjórnast miklu meira af hneigðum og hvötum, sem liggja djúpt í hinum dimmu fylgsnum sálarlífsins, og sem boðorð og bannhelgi hversdagslíf sins halda að jafnaði í skef jum. En þær að- stæður geta skapazt, að stríðið verður eina og síðasta útrásar- leiðin fyrir flótta- og árásar- hneigð mannsins. Stríðið veitir mönnum tæki- færi til þess að fremja með góðri samvizku athæfi, sem lög og siðgæði banna ella, já, gerir mönnum jafnvel að skyldu að fremja það. Stríð þjappar þjóð saman í sameiginlegu hatri til óvinanna og hrífur einstakling- inn út úr fábreytni hversdags- leikans í æsandi straumiðu sína. Þeim mönnum sem á ein- hvern hátt hafa beðið ósigur í lífinu, getur einmitt fundizt stríð lokkandi, af því að það veitir þeim ný tækifæri. Heims- friðurinn verður ekki tryggður með pólitískum og efnahagsleg- um ráðstöfunum eingöngu, hversu brýn nauðsyn sem þær kunna að vera. Friður í heimin- um byggist fyrst og fremst á því að mennirnir séu í sátt við
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Úrval

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.