Úrval - 01.07.1954, Side 79
HVERS VEGNA ERU ÖLL ATÓM EINS?
77
til skýringar á því að allar
elektrónur skuli vera eins. I
næsta nágrenni elektrónu er
spennufallið á hverja lengdar-
einingu billjón sinnum stærra
en svo að unnt sé að rannsaka
það með tilraunum. Menn hafa
getið sér þess til að við svo gíf-
urlegt spennufall bili lögmál
raffræðinnar. Á vissan hátt má
segja að elektrónan sé ekki ann-
að en depill með afar sterkt raf-
svið umhverfis sig. Slíkur depill
er kalláður sérstæður depill eða
sérstæða (singularity). Próf-
essor Max Born hefur sett fram
stærðfræðilega kenningu þar
sem hann sýnir fram á, að eigi
geti verið nema um eina tegund
sérstæðna að ræða, allir sér-
stæðir deplar séu eins.
Kenning Borns skýrir því
hvers vegna allar elektrónur eru
eins. En hún er of þröng; hún
getur ekki gert grein fyrir til-
vist prótóna og nautróna, né
heldur þeirra margvíslegu gerða
af mesónum, er komið hafa í ljós
að undanförnu í geimgeislun. —
Ennfremur er kenningin ákaf-
lega erfið meðferðar, og orsökin
er jafnframt höfuðeinkenni
hennar, nefnilega sú, að jöfn-
urnar leyfa ekki mælikvarða-
breytingu.
Þeim, sem hafa vonað, að sá
dagur kæmi er menn skildu eðli
efnis og smæstu agna, hljóta að
verða það alvarleg vonbrigði, að
þegar lausnin virðist á næstu
grösum, skuli stærðfræðin
gleypa allt saman.
En stærðfræðin fjallar um
tákn, og tákn eiga sér engan
persónuleika. Sé leyfilegt að í-
klæða allar elektrónur sama
tákni, er það einnig skiljanlegt
að þær hljóti allar að vera eins,
hvernig sem á þær er litið.
G. A. þýddi.
I hernum.
Liðþjálfinn horfði hvasst á nýliðann. „Svo að þú varst að
kvarta undan sandi í súpunni, ha?“
„Já, liðþjálfi.“
„Gekkstu í herinn til að þjóna landi þínu eða til að kvarta
yfir súpunni?"
„Til að þjóna landi mínu,“ svaraði nýliðinn, „en ekki til að
éta það.“ — Sterling Sparks.
★
Barnfóstran: „Hinrik, viltu ekki koma að sjá litlu fallegu
systur þína, sem storkurinn kom með?“
Hinrik: „Nei. En get ég fengið að sjá storkinn?"
— Vi Damer.