Úrval - 01.07.1954, Síða 83
VIÐ NÆGTABORÐ SÁMS FRÆNDA
81
húsið á leigu fyrir rúma 100
dollara á mánuði (1700 kr.).
Við hjónin vorum fljót að
kynnast amerísku nýlendunni í
Kaupmannahöfn. Ef frá eru
taldir hinir föstu starfsmenn
sendiráðsins, sem starfað hafa
árum saman við sendiráð víða
um heim, var þetta flest mið-
stéttarfólk frá smáborgum í
Bandaríkjunum. Flestir voru
hagfræðingar, verkfræðingar,
prófessorar og skrifstofumenn,
og flestir voru eins og við —
dálítið utan við sig og ekki fylli-
lega í essinu sínu í þessu nýja,
glæsta umhverfi.
,,Ef ykkur finnst óhóflegur
lúxus hjá okkur,“ var sagt við
okkur oftar enn einu sinni, ,,þá
ættuð þið að sjá hvernig N. N.
býr.“ Það kom þá jafnan í ljós,
að „N. N.“ bjó í skrauthýsi við
strandveginn norður af Kaup-
mannahöfn. Ströndin við Eyrar-
sund var eftirsótt af Ameríku-
mönnum. Rauð, blá, græn og
hvít hús standa í brekkunni upp
frá sjónum. Framan við þau eru
garðar, sem liggja í stöllum nið-
ur að sjávarborði en einkabað-
staður úti fyrir. I mörgum þess-
ara húsa voru tveir og stundum
þrír þjónar. En jafnvel hér í
þessu ríkmannlega umhverfi töl-
uðu gestgjafar okkar af öfund
um ECA starfsmenn í öðrum
löndum, sem byggju enn rík-
mannlegar.
Af þessum frásögnum fengum
við þá hugmynd, að víðsvegar
um Evrópu væru þúsundir af
eftirlætisbörnum Sáms frænda,
sem lifðu eins og hertogar og
hertogafrúr. Okkur hafði verið
sagt, að til þess að halda uppi
virðingu Bandaríkjanna út á við
væri séð til þess að starfsmenn
þeirra erlendis hefðu úr nógu
að spila, en fyrr mátti nú rota
en dauðrota. Aldrei höfðu svona
margir skattgreiðendur greitt
svona mikið fé til þess að standa
undir óhófslífi svona fárra
manna, sern voru slíku lífi alveg
óvanir.
Það var næstum ógerningur
að komast um í Kaupmannahöfn
nema í einkabíl. Næstum allir
Marshallmenn og sendiráðs-
menn áttu stóra ameríska bíla,
en við keyptum okkur lítinn
brezkan bíl, sem betur hæfði
þröngum vegum Evrópu. Hann
kostaði, að frádregnum 20%
„diplómatiskum" afslætti, 700
dollara (12000 kr.). Benzín var
af skornum skammti í Dan-
mörku og óheyrilega dýrt, en
við fengum hjá sendiráðinu sér-
staka benzínmiða og út á þá
fengum við benzín með miklum
afslætti.
Hlutverk mitt var að gera allt
sem ég gat til að skýra fyrir
dönsku þjóðinni tilgang Mars-
hallhjálparinnar og hvernig hún
væri rekin í þágu hennar sjálfr-
ar. Kommúnistar ráku hat-
ramman áróður gegn henni. —
Mitt verk, og annarra starfs-
manna upplýsingaþjónustuhnar
í Evrópu, var að vinna gegn
þessum áróðri og reka gagnáróð-