Úrval - 01.07.1954, Page 94

Úrval - 01.07.1954, Page 94
92 •Ú-RVAL hann. „Hann hefur ekki sézt hér í heilan mánuð. Við könnumst vel við hann.“ Ég leit á peningaseðilinn og brá heldur en ekki í brún. Seðill- inn var svo greinilega falsaður, að hann átti áreiðanlega ekki sinn líka í öllum heiminum. Fölsunin var svo blygðunarlaus, að það var blátt áfram viðbjóð- ur. Jafnvel iðja eins og seðla- fölsun krefst nokkurrar vand- virkni. Peningafalsari verður að taka tillit til lögunar og stærð- ar seðilsins, og hann verður að stæla gerð hans og útlit eins vel og honum er unnt. En seðillinn, sem lá á búðarborðinu fyrir framan mig var hinsvegar alveg út í hött. Það var varla við því að búast að slíkur þúsund líra seðill væri metinn meira en fimmtíu lírur. Ég rétti kaup- manninum aftur sígaretturnar og stakk seðlinum í vasa minn. „Það var leitt að þér skylduð ekki geta losað yður við hann“, sagði maðurinn hæðnislega. „Jæja, lífið er nú einu sinni svona, maður verður að taka því sem að höndum ber.“ Ég varð að ganga alla leiðina heim, og var ekki í neinu sól- skinsskapi þegar þangað kom. „Gekk þetta ekki vel?“ spurði Margherita. „Eins og í sögu“, svaraði ég, því að ég skammaðist mín fyrir að játa, að ég hefði látið glepj- ast á fölskum seðli. „Agætt!“ sagði Margherita. „Þá hlýtur þú að hafa losnað við bannsettan þúsund líra seðilinn, sem ég stakk í veskið þitt.“ Ég er ekki að tala við hálf- vaxna græningja, heldur þrosk- aða menn, sem þekkja hjóna- bandið af langri reynslu. Þeir vita að kvenfólk hefur gaman af svona brellum. Vel uppaldar stúlkur eru yfirleitt þeirrar skoðunar, að eiginmenn séu nokkurskonar tilraunadýr. Ég fer ekki lengra út í þá sálma. Ég lét skapið að minnsta kosti ekki hlaupa með mig í gönur. Ég tók seðilsfjandann upp úr vasanum og rétti Margheritu hann. „Sá sem hefur svikið hann inn á mig, skal verða að taka við honum aftur“, sagði hún með þjósti. „Og hver sveik hann inn á þig, Margherita?" „Það veit ég ekki. Ég verzla svo víða að það er ómögulegt að vita það með vissu“. I svona málum er gott að eiga konu verkstjórans að. Hún kom upp til okkar og Margherita sagði henni frá vandræðum okk- ar. „Þú skalt fá helminginn, ef þú getur komið honum út“. Eftir tvo daga kom kona verkstjórans og rétti Marghe- ritu fallegan fimm hundruð líra seðil. „Ég varð að fara með hann í annan borgarhluta“, sagði hún. „Það þekkja hann allir í búðunum hérna í kring, jafnvel sendisveinarnir. Nú get-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.