Úrval - 01.07.1954, Blaðsíða 108

Úrval - 01.07.1954, Blaðsíða 108
106 ■Orval hræra kökuna í þrjá stundar- fjórðunga. Síðan rétti hún mér kökumótið, sem var barmafullt af einhverju ljósgulu sulli, og lagði mér lífsregluna. „Settu það inn í ofninn og rektu tannstöngul í deigið öðru hvoru. Þegar ekkert loðir við tannstöngulinn, er kakan bök- uð, og þá átt þú að taka hana úr ofninum og láta hana kólna. Svo getur þú skreytt hana með ofurlítilli hugkvæmni og dá- litlu af þeyttum rjóma; síðan lætur þú kerti á hana og setur hana inn í ísskápinn." Hún fór að hátta, en ég sett- ist við ofninn til þess að fylgj- ast með kökunni. Ég opnaði ofninn annað veifið og stakk tannstönglinum í kökuna. Kak- an tók engum breytingum í fyrstu, en síðar varð hún gul- brún á litinn, blés upp og féll svo aftur. Tannstöngullinn brotnaði, þegar ég stakk hon- um í hana, því að skorpan var svo hörð. Ég rak þá nagla í kökuna, en deigið loddi við hann, og ég skellti ofnin- um aftur. I sama bili birtust Hertogafrúin og Albertino í dyragættinni. „Hvernig gengur með kök- una?“ spurði Hertogafrúin. „Hún er ekki fullbökuð," svaraði ég. „Hvernig lítur hún út?“ spurði Albertino. „Ég veit það ekki. Hún er ekkí búin að fá á sig endan- lega lögun.“ Við biðum í tíu mínútur, en gægðumst þá inn í ofninn. Kakan hafði fallið ennþá meira, og naglinn komst varla inn úr skorpunni. En nú loddi ekkert við hann. Kakan var bökuð. Ég tók mótið og setti það á eldhúsborðið. Síðan settum við kökuna í ísskápinn og eftir stutta stund var hún orðin köld. Svo tók- um við hana aftur út úr ís- skápnum og hvolfdum mótinu yfir eldhúsborðið. Kakan losn- aði úr mótinu og datt niður á borðið. Það glumdi í henni líkt og trékubb. Hún var gul á litin og um þumlungur á hæð, en við gátum aukið á hæð- ina með því að teygja hana dá- lítið. Við störðum þögul á kök- una, sem átti að verða mýksta og auðmeltasta afmæliskaka í heimi. „Aumingja mamma!" sagði Hertogafrúin með tárin í aug- unum. „Ekki þýðir að gráta orðinn hlut,“ sagði ég. „Við skulum taka til okkar ráða. Og munið að við erum ekki aðeins að berjast fyrir kökunni, heldur fyrir heiðri móður ykkar.“ Ég setti kökuna aftur inn í ofninn og lét hana dúsa þar þangað til hún var orðin eins hörð og tvíbaka. Þvínæst mal- aði ég hana í kjötkvörninni og blandaði duftið sem úr kvörn- inni kom með sætu víni. Afleið- ingin varð grautur, sem mér leizt engan veginn á. Ég bætti
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Úrval

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.