Úrval - 01.06.1955, Page 28

Úrval - 01.06.1955, Page 28
26 ÚHVAL við höldum því fram, að grimmd- in sé meðfædd, er fáránlegt að draga af því þá ályktun, að það hljóti ávallt að vera til góðs að kalla hana fram. Hver sá, sem haft hefur einhver kynni af börnum, veit hversu auð- veldlega þau geta komizt í upp- nám. Þeim hættir við að komast úr jafnvægi, þegar svo atvik- ast, að tilfinningum þeirra eru engar hömlur settar. Eins og gefur að skilja (og Dr. Wert- ham bendir réttilega á það) eru börn þakklát fullorðnum fyrir það að verja þau fyrir of sterk- um geðshræringum. Dr. Wertham virðist kenna glæparitunum um svo mikið þjóðfélagslegt böl, að útgefend- ur þeirra hljóta að vera stoltir af. Þó er hann ekki svo skyni skroppinn, að rugla saman ein- kennum sjúkdóms og orsökum hans. Hvað eftir annað tekur hann það fram, að vísu alltaf með almennum orðum, að glæpa- ritin séu aðeins eitt af táknum djúptækari þjóðfélagsmein- semda. Ráðlegging Dr. Wert- hams til að kveða niður glæpa- ritin, er eins skemmtilega gam- aldags og útskýringar hans. Fyrirmyndina fær hann frá lög- um um lyfjasölu og sölu á ómenguðum neyzluvörum. Dr. Wertham leggur til að sam- þykkt verði lög, sem banni að selja glæparit börnum innan fimmtán ára aldurs. Eins og komið hefur í Ijós, er ég mjög á sama máli og Dr. Wertham. Staðreyndir hans eru sannfærandi og athuganir hans á þeim einstaklega heilbrigðar. Þó get ég ekki varizt því að halda, — eins og Dr. Wertham minnist einnig á ■—• að nauð- synlegt sé að athuga vandamál- in, sem dyljast að baki glæpa- ritunum. Vissulega yrði bann við glæparitum aðeins til góðs eins fyrir hið bandaríska þjóð- félag, sem hrjáð er af svo mörg- um ennþá illkynjaðri meinum. En þegar böl er á brott numið, verður jafnframt eitthvað ann- að koma í þess stað. Hvað á. að koma í stað glæparitanna ? Eigum við að gróðursetja álm og birki þar sem nú standa grá- ir múrveggir? Eigum við að semja lög um frið og spekt til þess að vega upp á móti sora stórborgarlífsins ? Og hvað um atómsprengjur, f jarstýrð skeyti, sífelldar styrjaldarhótanir? Eig- um við kannski að segja börn- um okkar, að allar þessar ógn- anir um fjöldatortímingu séu ekkert annað en fáránlegar ímyndanir geggjaðra glæparita- höfunda ? En þessar háfleygu spurn- ingar fjalla um þjóðfélagslega ágalla, sem ekki eru einka- eign Bandaríkjanna. Auk þess er öllu vænlegra að líta einn- ig á þá sem sjúkdómsein- kenni, enda þótt hlutdeild þeirra í glæparitunum sé lýð- um Ijós. Hvernig getum við þá leitt í ljós þau atriði í banda- rískum lifnaðarháttum, sem eru
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.