Úrval - 01.06.1955, Blaðsíða 86
84
ÚRVAL,
verða súrefnisskortur í öðrum
líffærum og vefjum og þeir
deyja.
Nokkrir hamstranna, sem
lifðu af þessa harkalegu með-
ferð, lifðu lengi á eftir og virt-
ust ná sér alveg. Það er sér-
staklega athyglisvert, að fá
dýranna sýndu nokkur merki
um kal, þó að eyrun á sumum
væru svo freðin, að þau voru
viðkomu eins og pappi —■ senni-
lega svo mikið, að allt að 80%
af vatninu í vefjum eyrnanna
var orðið að ískristöllum.
I fljótu bragði mætti virðast
sem svona snögghitun vefjanna
væri líklegri til að valda tjóni
á þeim en hæg hitun, en ný-
Iegar rannsóknir á meðferði
kals á mönnum hafa sýnt, að
þau hafast betur við, ef þau eru
þýdd snögglega.
Meðan hamstrarnir voru
frosnir, var líf þeirra, í þeirri
merkingu sem við leggjum í það
orð, staðnað, og var síðan kom-
ið af stað aftur. Þess ber raun-
ar að gæta, að hamstrarnir
legg'jast í dvala þegar kalt er
í veðri og að þeir þola mjög
vel miklar breytingar á líkams-
hita. En mjög svipaðar frysti-
tilraunir hafa verið gerðar með
góðum árangri á rottum, sem
ekki leggjast í dvala.
Dr. R. K. Andjus, ungur,
júgósla.vneskur vísindamaður,
komst að raun um, að hægt var
að lífga við rottu, sem hafði
verið kæld svo að líkamshiti
hennar var aðeins ofan við
frostmark, ef hjarta hennar var
fyrst hitað með því að leggja
heita járnplötu við brjóstið áð-
ur en aðrir hlutar líkamans voru
hitaðir. Það var þessi uppgötv-
un, sem varð hinum brezku vís-
indamönnum hvöt til að hefja
tilraunir sínar í Mill Hill, þar
sem dr. Andjus vann í eitt ár,
kenndi aðferð sína og vann að
endurbótum á henni. t samvinnu
við dr. Audrey Smith tókst hon-
um að endurbæta hina tiltölu-
lega frumstæðu aðferð sína við
að koma fyrir hitunarplötu á
brjósti dýrsins, og seinna tók
hann 1 staðinn upp á að nota
Ijósgeisla.
Þeir félagar komust að rarrn
um, að rottur, sem lifðu meira
en sólarhring eftir að þær höfðu
verið lífgaðar við, náðu sér
venjulega að fullu. Sumar þeirra
hafa eignast heilbrigð afkvæmi
eftir að þær höfðu verið kæld-
ar niður undir frostmark og
haldið í þeim kulda í þrjá stund-
arfjórðunga. Ekki varð merkt,
að neinar verulegar skemmdir
yrðu á heilanum, þó að hann
væri sviftur súrefni í svona
langan tíma. Minniháttar
skemmdir geta þó hafa orðið,
rotturnar hafa enn ekki verið
, ,greindarprófaðar. ‘ ‘
Stærri dýr hafa ekki enn
verið fryst og endurlífguð, en
dr. Juvenelle, sem starfar í
París, hefur endurlífgað hund
eftir að líkamshiti hans hafði
verið lækkaður niður í 12° og