Úrval - 01.06.1955, Page 42

Úrval - 01.06.1955, Page 42
40 ÚRVAL og er. Sannleikann. Ef maður er stoltur af því sem maður hefur gert og þeirri velgengni sem manni hefur hlotnast, af hverju á maður þá að gera lítið úr því? Fr.: Maður þarf heldur ekki að vera rembilátur þessvegna. Það er líklega það sem menn óttast. B.: Já, en það er annað mál. Mér finnst ég ekki rembilát. Ég fyllist alltaf innilegu þakklæti, og þegar maður kennir þakk- lætis og auðmýktar gagnvart starfi sínu og óumræðilegrar gleði, eins og ég kenni í hvert skipti sem ég fæ hlutverk er veitir mér tækifæri til sköpunar, þá getur varla verið um dramb að ræða. Fr.: Það er ekki algengt, að listamaður taki upp vörn fyrir sjálfan sig í starfi sínu, þess- vegna held ég að þér hljótið að skilja þá menn, sem líkt er ástatt um og geta ekki svarað fyrir sig þegar á þá er ráðist. B.: Já, það er ójafn Ieikur. Einkum þegar menn atvinnu sinnar vegna eða af öðrum á- stæðum geta ekki svarað fyrir sig. Ég fann auðvitað sérstak- lega til þess þegar ég leysti frá skjóðunni í Konserthúsinu. En í sambandi við það vil ég einnig leggja áherzlu á, að eftir þann atburð hef ég fengið ótal mörg bréf. Ég hef ekki getað þakkað fyrir þau, ég get blátt áfram ekki þakkað öllum, sem hafa skrifað mér hvaðanæva af land- inu og einnig utan úr heimi. En það er einkum sænska þjóðin, sem ég vil nú flytja hjartanlegustu þakkir mínar fyrir öll þau vinsamlegu bréf sem ég hef fengið. Og öll þau blóm, sem mér hafa verið send, til gistihússins og til leikhúss- ins, hafa verið mér svo dásam- legur vottur um vinarhug, að ég fer frá Svíþjóð með fagrar minningar og innilegt þakklæti í huga til þeirra áhorfenda, sem ég á hér enn. 0-0-0 BORÐBÆNIN. Það var óbærilega heitur dagur og við höfðum gesti til kvöld- verðar. Þegar við vorum sezt við borðið, bað ég f jögra ára dótt- ur mína um að fara með borðbænina. Hún varð vandræðaleg og sagði: ,,Já, en mamma, ég veit ekki hvað ég á að segja.“ „Segðu bara það, sem þú hefur heyrt mig segja,“ sagði ég. Hún laut höfði og sagði skýrt og hátt: „Ó, guð minn góður; af hverju var ég að bjóða þessu fólki í svona hita?“ •— E. C. James.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.