Úrval - 01.06.1955, Síða 87

Úrval - 01.06.1955, Síða 87
FROSIN SPENDÝR LlFGUÐ VIÐ 85 haldið á því stigi í marga Idukkutíma. Þessar rannsóknir á áhrifum lækkaðs líkamshita voru í fyrstu aðeins gerðar af fræði- legum áhuga, en þess er nú vænzt, að þær eigi eftir að hafa mikla þýðingu fyrir læknis- fræðina. Aðrar tilraunir til að lækka líkamshita dýra og manna, þó ekki nærri eins mik- ið, hafa þegar leitt til fram- fara í læknisfræði.* Tilraunir til að lækka lík- amshita manna í læknisfræði- legum tilgangi voru gerðar fyrir síðustu heimsstyrjöld, en báru lítinn árangur. Á stríðs- árunum gerðu þýzkir læknar hinar illræmdu tilraunir sínar á föngum í Dachau-fangabúð- unum. Naktir fangar voru látn- ir vera í miklum kulda klukku- tímum saman. Læknarnir upp- götvuðu, að hægt var að lækka líkamshita mannsins miklu meira en áður hafði verið tal- ið unnt, áður en fangarnir dóu, en ekkert sem hafði læknis- fræðilegt gildi hafðist upp úr þessum hryllilegu tilraunum. Það voru tveir franskir lækn- ar, Laborit og Huguenard, sem fyrstir tóku fyrir alvöru í notk- un þá aðferð að lækka líkams- hitann. Lækkunina framköll- uðu þeir með tvennu móti — annarsvegar með því að kæla yfirborð líkamans með íspok- * Sjá greinina „Skurðsjúklingar lagðir í dvala“ í 4. hefti 13. árg. mri eða gúmslöngum með kæli- vökva í og hinsvegar með því að draga úr brunanum í lík- amanum með lyfjum. Aðferðin, sem síðan hefur almennt ver- ið tekin upp á sjúkrahúsum, er sambland þessara beggja. Höf- undur þessara greinar hefur komið í Vaugirardspítalann í París og fengið tækifæri til að sjá þessa aðferð notaða við sjúklinga, sem gengu undir stóra uppskurði. Sjúklingnum er fyrst gefin lyfjablanda, sem dregur úr bruna líkamans með því að hafa áhrif á þá miðstöð í heil- anum, sem temprar líkamshit- ann og kemur einnig í veg fyr- ir skjálfta (sem er ósjálfráð tilraun líkamans til að auka hitamyndun í vöðvunum). Þeg- ar sjúklingurinn er orðinn hálf- meðvitundarlaus, er gúmslöngu, sem tengd er við kælikerfi, vaf- ið um líkamann. Sjúklingurinn finnur ekki kulda meðan kæli- vökvinn rennur um slönguna. Skurðaðgerðin byrjar þegar líkamshitinn er kominn niður í 32°. Franskir læknar telja, að þessi aðferð dragi mjög úr hættunni á losti, sem gjarn- an fylgir skurðaðgerð og kem- ur einkum af skorti á súrefni, er stafar af skyndilegri lækk- un blóðþrýstings, sem verður þegar vefir eru mikið skornir í sundur. f Bretlandi hefur verið fund- in upp önnur aðferð til að
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116

x

Úrval

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.