Úrval - 01.06.1955, Side 90
Hann trúði á smáþjóðirnar.
IJr „Vi“.
Með dauöa Alberts Einstéin missti heimurinn einn fremsta vís-
indamann sinn fyrr og síöar. Meö uppgötvunum sínum, og þá fyrst
og fremst afstœðiskenningunni, markaði hann tímamót á sama hátt
og Kópernikus og Newton. Úrval birti á sínum tima œvisögu Ein-
steins, í 1. liefti 3. árg. og í 4. hefti 13. árg. birtist greinin „Mikíl-
mennið Albert Einstein“ í tilefni 75 ára afmœlis hans. Hér birtist
útdráttur úr viðtali, sem danskur blaðamaður átti við hann árið
li)J/9, en þaö taldist til viðburða ef blaðamaður náði tali af Ein-
stein. 1 viðtalinu rœðir Einstein friðarmálin, sem voru honum mjög
hugleikin síðustu árin.
MÁÞJÖÐIRNAR geta bjarg-
að heiminum. Það var trú
Alberts Einstein. Hann viðhafði
þessi orð við danska blaða-
manninn og skáldið Piet Hein
í litlu, afskekktu vinnustofunni
sinni, þar sem allir veggir voru
þaktir bókahillum og lítill
gluggi veitti útsýn yfir hinn
litla heim hans, háskólaborgina
Princeton.
„Má ég flytja smáþjóðunum
þessi orð yðar?“ spurði blaða-
maðurinn.
,,Já, segið þeim það! Það
verður aldrei of oft endurtekið.
Og aldrei of mikil áherzla lögð
á það. Smáþjóðirnar hafa mjög
mikilvægu hlutverki að gegna:
að halda á lofti þeirri hlut-
lægni, sem ekki virðist eiga
hljómgrunn meðal stórþjóðanna
eins og ástandið er nú.
Stjórnendur smáþjóðanna
verða, með fólkið að baki sér,
að ganga fram fyrir skjöldu
og gagnrýna stórveldin, hlut-
lægt og án hlutdrægni, einung-
is í þágu mannkynsins.
Þær þurfa ekki að taka tillit
til valdahagsmuna. Og þær
þurfa heldur ekki að bjóða fala
hlutlægni sína, því að örlög
þeirra verða óháð því hvort
þau sýna einu eða öðru stór-
veldinu ,,hollustu“. En örlög
heimsins geta verið undir því
komin að einhver óháður aðili
mæli þau varnarorð, sem heim-
urinn þarfnast svo mjög eins
og nú er ástatt, og sem er stór-
veldunum einnig í hag, þrátt
fyrir hið tryllta vígbúnaðar-
kapphlaup þeirra.
Hafa smáþjóðir yfirleitt
nokkur áhrif?
Heimurinn hlustar meira á
smáþjóðirnaren þær gera séroft