Úrval - 01.06.1955, Page 105

Úrval - 01.06.1955, Page 105
LÆKNIR I HVALVEIÐILEIÐANGRI stökk upp úr sjónum 1 dauða- teygjunum og sökk síðan í blóð- litað löðrið. „Þetta var Mark •— þetta er eftirlætis íþróttin hans,“ sagði Adamson. „Honum er bölvan- lega við þessa hvali. Helming- urinn af hvölunum sem við veið- um, eru stórskaddaðir eftir þá. Þeir rífa úr þeim tunguna og stórar flyksur af spikinu. Nú er Mark ánægður, úr því að honum tókst að lóga einum af þeim.“ Það var komið fram undir morgun, þegar búið var að skera síðasta hvalinn. Sjó var dælt á þilfarið, til þess að skola burt blóðið og óþverrann. Þeir hundrað menn, sem höfðu unn- ið við hvalskurðinn, fóru niður í klefa sína, þreyttir og þögul- ir. Slátruninni var lokið og það var eins og skipið væri mann- laust og yfirgefið. En áður en ég fór niður, heyrði ég annað riffilskot frá stjórnpallinum, og þá vissi ég, að einn maður var að minnsta kosti vakandi, og að hann var að ná sér niðri á illhvelunum. I Suðuríshafinu er algeng sjón að sjá 20 til 30 hafísjaka í nánd við skipið. Enda þótt ís- inn sjáist ekki vegna þoku eða óveðurs, kemur hann fram á ratsjánni í allt að 30 mílna f jar- lægð. Mark hafði séð hafísjaka, sem voru 35 sinnum 10 mílur að ummáli, og 100 fet á hæð, ÍOS en sumir jakar eru miklu stærri. Hann sagði, að bezta ráðið til að ná í góðar ljósmyndir af hafísjökum, væri að láta ís- mola í baðkerið sitt og taka myndir af þeim þar. Jakarnir eru yfirleitt flatir að ofan, því að þeir eru aðeins hluti af ís- hellunni, sem hylur Suðurheim- skautslöndin. Eg spurði Mark hvort mörg skip færust í ísnum núorðið. „Fáein verksmiðjuskip hafa farizt,“ sagði hann, „og hvert félag missir oft einn eða tvo hvalveiðibáta á vertíðinni. Við misstum einn í hitteðfyrra, og annan árið þar áður.“ Ég ræddi oft við Mark og aðra skipverja um hætturnar, sem eru samfara hvalveiðum nú á tímum, og um hvalveiðarnar eins og þær gerðust í gamla daga, þegar menn skutluðu hvalina úr opnum bátum. Þeir voru á einu máli um það, að þó að dregið hefði úr hættunum á sumum sviðum, hefðu þær auk- izt á öðrum. Tökum til dæmis skipin í hvalveiðiflotanum: Verksmiðju- skipið, þessi stóri og klunna- legi járnkláfur, var engan- veginn örugg fleyta; yfir- mennirnir kváðust heldur vilja vera á gamaldags barkskipi, ef eitthvað væri að veðri. En á hinn bóginn höfum við ratsjá, bergmálsdýptarmæli og full- komin slökkvitæki um borð. Hvalveiðibátarnir og litlu skipin voru um það bil helm-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Úrval

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Úrval
https://timarit.is/publication/1841

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.