Læknaneminn - 01.09.1981, Page 35

Læknaneminn - 01.09.1981, Page 35
TAFLA II Fyrstu lyf sem gefin eru við endurlífgun Súrefni Na-bíkarbónat Adrenalín Lidokaín mínútna fresti meðan bjartastopp er. Na-bikarbónat er á markaði hér í tvennu formi: 1) Lykja með 50 ml, sem inniheldur 44,6 meq af Na+ og jafnmikið af HC03_. 2) fnnrennslislausn 500 ml í flösku, sem inniheld- ur 83,5 meq af Na+ og jafnmikið af HC03_. Adrenalín: Aðeins er gefið við asystólu eða „fín- gerða“ fibrillatio ventriculorum. Það ertir hjarta og er reynt að uppvekja grófgerða fibrillatio ventri- cuiorum. Síðan er gefið hjartarafstuð. Er oftast gef- ið í bláæð 0,5-1,0 mg í senn. Má gefa óblandað eða blandað vatni eða saltvatni upp í 5 eða 10 ml. Er gefið í endurteknum skömmtum á 5 mínútna fresti eins og þarf. Adrenalín má einnig gefa í barkarennu ef illa gengur að komast í bláæð. Er þá 1 mg bland- að í 5-10 ml af saltvatni eða vatni. Þriðja leiðin er að gefa adrenalín í hjartahólf (intra-cardialt). Er það neyðarúrræði og eina lyfið sem þannig er gefið. Adrenalín er hér á markaði í lykju með 1 mg/1 ml. Lídóhaín: Hefur verið algengasta lyfið við hjart- sláttaróreglu sem uppruna á í slegli (aukaslög, tachy- cardia, flutter, fibrillatio). Það minnkar sjálfvirkni í bjarta nema í sinus hnút og hindrar „reentry“. Heldur lyfið þannig niðri hjartsláttaróreglu frá slegli. Byrjunarskammtur er um 1,5 mg/kg, gefið í bláæð. Síðan lídókaíndreypi 1—4 mg/mín. Oft þarf í upp-hafi að gefa 2—3 skammta. Eftir fyrsta skammt eru næstu skammtar minnkaðir um helming og jafn- framt haldið áfram með dreypið. Stefnt er að því að halda þéttni lyfsins í plasma 1,4—5,0 mikróg./ml. 1 akist ekki strax að komast í bláæð má gefa fyrstu skammta í barkarennu. Lídókaín er hér á markaði í hettuglösum og sem dreypilausn: 1) Hettuglös með 20 ml: 1% lausn með 10 mg/ml og 2% lausn með 20 mg/ml. 2) Dreypilausn: 1 g af lidókaín í 500 ml af 5% glucosa. Varast ber að nota lídókaín með adrenalíni, sem ætlað er til deyfinga. Áðurnefnd þrjú lyf er best að hafa tilbúin í sprautum og eru þau þannig á markaði víða erlendis. Er æskilegt að þau verði bráðlega almennt til í því formi hérlendis. Önnur lyf sem nefna má eru: 1) Þvagræsilyf (fúrósemíð eða etakrínsýra) til að tæma út vökva og auka þvagútskilnað. 2) Atropin, ef sinus bradycardia er jafnhliða lág- um bfóðþrýstingi. 3) Kalsíum, til að auka slagkraft slegils. 4) Prókainamíð eða bretylíum ef lídókaín dugar ekki. 5) Própranólól, til að hægja á hröðum hjartslætti. 6) Dópamín, metaramín eða efedrín til að auka slagkraft og hækka blóðþrýsting. 7) fsoprenalín við 3° A-V „block“. Einnig má leggja inn gangráð. 8) Sterar, aðallega til heilaverndunar. Hjartarafrit Er nauðsynlegt til nákvæmari greiningar á hjarta- starfi, en á því byggist meðferð að verulegu leyti. Hjartarafstuð Rafstuð má nota til að breyta vissum hj artsláttar- óreglum í sinus takt. Það þurrkar út þau rafhrif sem fyrir eru í hjarta og þess þá freistað að sinus hnútur taki við stjórn rafboða. Hann er sá gangráður sem fyrstur tekur við sér. Við endurlífgun er oftast um að ræða að breyta fibrillatio ventriculorum í sinus takt. Við asystólu eru engin eða það lítil rafhrif til staðar að hjarta svarar ekki rafstuði. Er þá gefið adrenalín til að erta upp rafhrif (fibrillatio ventri- culorum) og síðan gefið rafstuð. Þegar rafstuð er gefið (defibrillatio) er annað skautið staðsett hægra megin við ofanvert bringu- bein en hitt hliðlægt við vinstri geirvörtu. Rafstuðari (defibrillator) er stilltur frá 100-400 joule fyrir full- orðna við endurlífgun. Þegar stutt er liðið frá hjarta- stoppi duga lægri stillingar en annars er ráðlegt að fara strax í 300-400 joule. Fyrir börn er ráðlagt að gefa fyrst um 2 joule/kg, en síðan tvöfalda. Högg yfir neðri hluta bringubeins líkist veiku raf- 33 læknaneminn

x

Læknaneminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Læknaneminn
https://timarit.is/publication/1885

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.