Læknaneminn - 01.09.1981, Blaðsíða 65
se að kenna námsefni 4. og 6. árs á tveimur sam-
liggjandi árum. Það er því freistandi hugmynd að
skipta á 5. og 6. ári þannig að náminu ljúki með
námsefni 5. árs. Handlæknis- og lyflæknisfræði yrðu
kennd á 4. og 5. námsári. Breyting þessi er þó erfið
í framkvæmd. Hugsanlegt er þó að í slikt yrði ráð-
ist innan fárra ára. Vafalaust yrði bót af.
Forfyrirlestrar á 5. ári þykja nýtast heldur illa.
Hefur verið um það rætt að fella þá niður en lengja
þess í stað hvern kúrs um eina viku. Hver kúrs hæf-
!st þá með nokkuð þéttu fyrirlestraprogrammi, en á
sama tíma kynnast nemendur að nokkru viðkomandi
deildum. Slikt fyrirkomulag er án efa heppilegt en
eylcur nokkuð álag á kennara þar sem fjórflytja
þyrfti fyrirlestrana. Þetta er samt sem áður fýsilegur
kostur.
Hér læt ég staðar numið í umfjöllun um hugsan-
legar breytingar á náminu. Margt er þó ótalið og
bíða ýmis verkefni kennslunefndar.
Af öðrum málefnum sem kennslunefnd læknadeild-
ar og kennslumálanefnd Félags læknanema hafa fjall-
að um ber e. t. v. hæst deilan um numerus clausus
og breyttar einkunnakröfur. Niðurstöður nefndar
sem skipuð var af deildarráði „til að athuga eftir
hvaða leiðum sé framvegis heppilegt að velja stúd-
enta til læknanáms . . .“ voru til umfjöllunar.
Kennslumálanefnd bar fram tillögu þess efnis að
slíkum deilumálum yrði skotið á frest og deildin
beitti sér að brýnni og eðlilegri verkefnum. Bentu
nemendur í kennslunefnd á að deilan um fjöldatak-
markanir væri til þess fallin að auka á sundrungu
innan læknadeildar og gagnkvæma tortryggni, ekki
hvað síst milli margra kennara og nemenda. Þessi
tillaga nemenda var snarlega felld. Tillagan um hinn
illræmda numerus clausus var samþykkt með 8 atkv.
gegn 3. Á tímabili var einnig til umræðu tillaga frá
Guðrnundi S. Jónssyni þess efnis að hækka bæri fall-
einkunn allra prófa á l. og 2. ári úr 5,0 í 6,5. Seinna
dró hann tillöguna til baka.
Kennslunefnd samþykkti því bæði numerus clausus
og auknar einkunnakröfur. Málið er þó ekki enn til
lykta leitt þar sem Háskólaráð á eftir að taka af-
stöðu til þess.
Undir lok síðasta skólaárs var mikið deilt um fyr-
irhugaðar breytingar á kennslufyrirkomulagi 4. árs.
Tillögur komu fram um að auka bóklega hluta náms-
ins á 4. ári á kostnað þess verklega. Einnig átti að
taka próf í hand- og lyflæknisfræði í lok ársins. Próf
þessi áttu ekki að vera áfangapróf, þ. e. a. s. ekki
yrði lokið ákveðnu efni heldur skyldi prófað á ný
úr sama efni á 6. ári en þá öllu nánar. Nemendur
deildu hart á þessar tillögur, einkum þá tilhneigingu
að stytta stöðugt verklega námið. Einnig þótti ljóst
að fyrirkomulag verklega námsins raskaðist veru-
lega. Engu að síður voru tillögurnar samþykktar á
öllum vígstöðvum. I vetur komu svo upp ýmis vanda-
mál varðandi framkvæmd verklega námsins eins og
nemendur höfðu varað við. Lokin urðu þau að 4.
árs prófið var fellt niður og væntanlega verður verk-
lega námið aukið á ný.
Tvær undirnefndir skiluðu áliti í lok síðasta árs.
Fjölluðu þær um 1.-3. árið annars vegar og 4.-6.
árið hins vegar. Ymsir fróðlegir punktar komu fram
í þessum nefndarálitum, en ekki lögðu þessar nefnd-
ir fram ákveðnar tillögur. Að mörgu leyti voru
nefndirnar á sama máli og námsnefndirnar.
Kennslunefnd tók afstöðu til prófa í hand- og lyf-
læknisfræði á 6. ári. Taldi nefndin heppilegast að
jafnan yrði prófað í lyflæknisfræði á undan hand-
læknisfræði, Nemendur hafa jafnan barist fyrir
þessu.
Nefndin fjallaði um bréf frá kennurum í hand- og
lyflæknisfræði svo og frá yfirlæknum viðkomandi
deilda. I bréfum þessum lýsa umræddir aðilar yfir
jrungum áhyggjum sínum varðandi hugsanlega fjölg-
un nemenda í verklegu námi innan skamms. Hefur
ýmis örþrifaráð borið á góma, s. s. að loka hreinlega
deiklinni í eitt ár og skipta þessum stóra árgangi sem
nú er á 2. ári í tvennl. Einnig hefur verið rætt um
að kenna verklegt nám yfir sumartímann. Iútill rek-
spölur er á málinu sem stendur.
Kennslumálanefnd hefur vísað á bug hugmyndinni
um að loka deildinni enda væri það hið mesta rang-
læti við væntanlega nemendur. Auk þess bentum við
á möguleika, s. s. lyflæknisdeildina á Vifilsstöðum,
öldrunardeildina í Hátúni, heilsugæslustöðvar borg-
arinnar o. fl. Þá má einnig hafa í huga að ekki er
langt síðan árgangur af svipaðri stærð fór í gegnum
deildina án verulegra árekstra.
Hér að ofan hefur verið drepið á mörg þau mál
sem hæst risu 'hjá kennslumálanefnd Félags lækna-
nema og kennslunefnd læknadeildar á liðnu starfs-
LÆKNANEMINN
63